Viðmiðunarreglur Sambands garðyrkjubænda um kröfur til styrkumsókna vegna 5. gr. aðlögunarsamningsins hljóða svo:
Reglurnar hafa verið samþykktar af Fagráði garðyrkjunnar og Garðyrkjumiðstöð.
Styrkumsóknir þurfa að berast SG skriflega og áður en farið er af stað með viðkomandi verkefni.
Grundvöllur aðlögunarsamningsins er að efla beri ræktun á íslensku grænmeti og kartöflum. Þess vegna eru eingöngu veittir styrkir vegna íslenskrar framleiðslu. Það þarf því að koma skýrt fram við sölu og framsetningu vörunnar að um íslenskt ræktað grænmeti sé að ræða. Samband garðyrkjubænda hefur látið sérhanna svokallaða fánarönd til þessara merkinga og setur sem skilyrði fyrir styrkveitingum að hún sé notuð. Sýnishorn af umbúðum skal fylgja öllum umsóknum.
KYNNINGAR – Umsókn berist a.m.k. 3 mánuðum fyrir kynningu.
Styrkumsóknir eru metnar á grundvelli áætlunar kynningaraðila. Ætlast er til að umsækjandi leggi sjálfur fram a.m.k. krónu á móti krónu í hvert verkefni. Ekki eru styrktar beinar auglýsingar eða heimasíðugerð fyrir einn aðila. Skilyrði fyrir að auglýsingastyrkur sé veittur er að auglýsingin sé í nafni íslenskrar grænmetisframleiðslu í heild og/eða í framhaldi af viðurkenndri vöruþróun. Einnig að fánarönd SG sé notuð.
Með umsókn fylgi eftirfarandi upplýsingar:
Eins og segir til um í aðlögunarsamningnum, 5. gr. 2 leitar Samband garðyrkjubænda eftir tillögum Fagráðs garðyrkjunnar og Garðyrkjumiðstöðvarinnar um ráðstöfun fjárveitinga til verkefna.
RANNSÓKNIR – Umsóknarfrestur 1. nóvember fyrir næsta ár á eftir
Með umsókn fylgi eftirfarandi upplýsingar:
ÞRÓUN – Umsóknarfrestir eru til 1. nóvember og 1. maí.
Meginreglan er sú að fyrirtækjum sé hjálpað að þróa vörur (aðkeypt vinna), en vélakaup einstakra fyrirtækja eiga að standa undir sér sjálf). Um styrki þarf að sækja fyrirfram, þ.e. áður en vöruþróunin hefst. Ætlast er til að umsóknaraðilinn leggi fram a.m.k. 1 kr á móti 1 kr í hvert verkefni.
Skilyrði fyrir styrkveitingu er að við markaðssetningu verði hin nýja vara merkt með fánarönd SG.
Með umsókn fylgi eftirfarandi upplýsingar:
ENDURMENNTUN
Erlendir ráðunautar – Sótt sé um fyrir 1. nóvember fyrir næsta ár á eftir. Styrkir vegna ráðunautaheimsókna nema útlögðum kostnaði og launakostnaði viðkomandi sérfræðings.
Með umsóknum fylgi eftirfarandi upplýsingar:
Kynnisferðir bænda – Umsókn berist fyrir áætlaðan brottfarartíma. Styrkir til kynnisferða geta numið allt að kr. 150.000.- á hverja garðyrkjustöð á ári. Ætlast er til að kynnisferðir séu fyrst og fremst skipulagðar af faghópum og/eða ráðunautum.
Með umsókn fylgi eftirfarandi upplýsingar:
Greiðsla er háð því að skilað sé skýrslu um ferðina og árangur hennar, sem SG samþykkir.
Stjórn SG getur kallað eftir gögnum frá umsækjendum um þá liði í umsóknum sem stjórnin telur ekki nægilega vel skýrð eða studd fullnægjandi gögnum. Ef fullnægjandi gögn fást ekki með umsókn getur verið óhjákvæmilegt að vísa viðkomandi umsókn frá.
GREIÐSLUR fara fram eftir að verkefni eða áfanga verkefnis lýkur og niðurstöður hafa verið samþykktar af Sambandi garðyrkjubænda.
Þessar reglur verði birtar á vefsíðu Sambands garðyrkjubænda og í auglýsingum um styrkumsóknir vísað í þær.