08. febrúar 2008 | 16:27
| Blóm

Fundur Félags blómaframleiðenda og Markaðssjóðsins
Fundur verður haldinn í Félagi blómaframleiðenda og Markaðssjóði garðyrkjubænda mánudaginn 11. febrúar kl. 16:00 á Reykjum, Hallanda.
 
Aðalmál fundarins verður hugsanleg þátttaka blómageirans í Landbúnaðarsýningu á Suðurlandi, seinnihluta ágústmánaðar í sumar.
 
Einnig getum við litið saman yfir tölur sem Helga Hauks hefur tekið saman fyrir seinnihluta 2006 og fyrrihluta 2007.
 
Einnig er rétt að Markaðssjóðurinn kynni kynningar- og auglýsingaáætlun fyrir Valentínusar- og Konudag.
 
Að lokum þyrftum við að ákveða dagsetningu aðalfundar Markaðssjóðs og Félags Blómaframleiðenda.
 
Ragnar Sverrisson býður okkur á "blómarölt" 29. febrúar.
Nánar auglýst síðar.
Til baka
Prentvæn útgáfa


Samband garðyrkjubænda - Bændahöllinni við Hagatorg - 107 Reykjavík - Sími 563 0328, 896 8101 - gardyrkja@gardyrkja.is
Hafa samband | Veftré