23. september 2008 | 14:00
| Á döfinni
Haustfundur 2008 og Uppskeruhátíð garðyrkjunnar!
Haustfundur Sambands garðyrkjubænda verður 7. nóvember næstkomandi á Hótel Selfossi. Enn er dagskrá ekki fullmótuð en vandað verður til hennar eins og fyrr. Um kvöldið verður síðan Uppskeruhátíð garðyrkjunnar á sama stað og hefst hún með þriggja rétta hátíðarmálsverði, skemmtun og balli. Þeir sem vilja geta gist og er sérstakt hátíðarverð á gistingu. Þeir sem hafa áhuga eru beðnir að hafa samband við framkvæmdastjóra.