Þrír fundir voru haldnir í Félagi blómaframleiðenda á nýliðnu ári, auk aðalfundarins. Ákveðið var að ,,poppa fundina aðeins upp" og halda þá heima á garðyrkjustöðvunum og gæða þá auknu lífi með því að skoða viðkomandi stöðvar í leiðinni. Fyrsti fundurinn var haldinn í Espiflöt hjá þeim Áslaugu og Sveini. Þau rækta þar ýmsar gerðir afskorinna blóma á 4900m2 undir gleri. Annar fundurinn var haldinn hjá Eddu og Gunnari í Ártanga. Þau hjónin eru þar með fjölbreytta pottaplönturæktun auk afskorinna túlipana og páskalilja. Þriðji félagsfundur ársins var svo haldinn í Gróðrarstöðinni Dalsgarði í Mosfellsdal, hjá þeim Helenu og Gísla en þau rækta afskornar rósir og túlipana.´
Ýmis mál voru rædd á fundunum, m.a. málefni Markaðssjóðsins en hann hefur nú starfað í nærri 3 ár. Ólafur Friðriksson skrifstofustjóri í Landbúnaðarráðuneytinu kom á fundinn í Ártanga og fór yfir stöðu mála í innflutningi pottaplantna. Þar kom líka fulltrúi nefndar SG um leiðréttingar á tollskrá blóma og greindi frá tillögum nefndarinnar. Ályktun um fánarönd Sambands garðyrkjubænda var send stjórn SG af þriðja fundinum.
Ályktunin:
“Félag Blómaframleiðanda óskar eftir því við Samband Garðyrkjubænda að fylgt verði stöðugt eftir kynningu á íslensku fánaröndinni. Markmiðið verði að viðhalda jákvæðri ímynd á íslenskri garðyrkju með fánaröndina í forgrunni.
Almenn ánægja ríkir með íslensku fánaröndina meðal blómaframleiðenda og teljum við hana öflugusta vopnið í markaðsetningu á íslenskum garðyrkjuafurðum. Stjórn Félags blómaframleiðenda."
Myndin sýnir pottablóm (Kalanchoe) frá Garðyrkjustöðinni Ficus í Hveragerði með fánarandarmerkingunni, sem aðgreinir íslenska framleiðslu frá þeirri innfluttu.