08. febrúar 2008 | 16:27
Fundur verður haldinn í Félagi blómaframleiðenda og Markaðssjóði garðyrkjubænda mánudaginn 11. febrúar kl. 16:00 á Reykjum, Hallanda.
Aðalmál fundarins verður hugsanleg þátttaka blómageirans í Landbúnaðarsýningu á Suðurlandi, seinnihluta ágústmánaðar í sumar.
Einnig getum við litið saman yfir tölur sem Helga Hauks hefur tekið saman fyrir seinnihluta 2006 og fyrrihluta 2007.
Einnig er rétt að Markaðssjóðurinn kynni kynningar- og auglýsingaáætlun fyrir Valentínusar- og Konudag.
Að lokum þyrftum við að ákveða dagsetningu aðalfundar Markaðssjóðs og Félags Blómaframleiðenda.
Ragnar Sverrisson býður okkur á "blómarölt" 29. febrúar.
Nánar auglýst síðar.