Fundur hjá stjórn Félags blómaframleiðanda Garðyrkjuskóla ríkisins 11.02.2008 kl. 16:00. Grænmetisframleiðandi og garðplöntuframleiðandi voru einnig boðaðir. Á seinni hluta fundarins mætti stjórn Markaðssjóðs blómaframleiðanda.
Mættir voru; Sveinn Sæland, Ragnar Sverrisson, Bjarni Finnsson, Gunnar Þorgeirsson, Sigurður Moritzson, Ingibjörg Sigmundsdóttir, Helga Hauksdóttir, Georg Ottósson og Helga Sigurðardóttir.
Fyrri hluti.
Tilefni 100 ára afmælissýning Búnaðarfélags Suðurlands.
Sveinn kynnti þau gögn sem hann hafði um fyrirhugaða sýningu Búnðarfélags Suðurlands sem haldin verður á Hellu nk. ágúst. Búnaðarfélagið bað hann að athuga áhuga á þátttöku garðyrkjubænda á þessari sýningu. Ekki er enn ljóst hver kostnaður verður eða stærð sýningarsvæðis sem garðyrkjubændur hafa til umráða. Umræða fór fram um þetta mál, beðið er eftir frekari upplýsingum.
Seinni hluti.
Helga Hauksdóttir kynnti samantekt á sölu afskorinna blóma fyrir seinnihluta ársins 2006 og fyrrihluta 2007. Bjarni Finnsson fór yfir auglýsingamál fyrir Valentínusar- og Konudag. Hann náði samkomulagi við Bylgjuna þar sem þeir gefa blómavendi frá íslenskum blómabændum fyrir Valentínusardaginn. “Króna á krónu” verkefnið hefur gefið góða raun. Hafsteinn Hafliðason mun líklega fá pistlana sína birta í 24 stundum.
Boðað verður til aðalfundar í mars.
Næsti fundur hjá blómaframleiðendum verður haldinn hjá Ragnari Sverrissyni þann 29. febrúar.
Fundi slitið kl. 18:15