Fundur hjá stjórn Félags blómaframleiðanda í Ösp, Laugarási föstudaginn 29. febrúar 2008 kl: 16:00.
Mættir voru: Ragnar Sverrisson, Sigrún, Bjarni Finnsson, Gísli Jóhannsson, Erlingur Ólafsson, Gústaf Sæland, Sveinn Sæland og Helga Sigurðardóttir.
Ragnar og Sigrún buðu fundarmenn velkomna.. Gengið var um stöðin þar sem rósaræktin var skoðuð. Þau er einnig með agúrku og tómataræktun.
Dagskrá:
Farið var yfir samantekt um þróun blómasölu og meðalverðs frá janúar 2006-2007.
Einnig var farið yfir skoðanakönnun sem gerð var fyrir Samband Garðyrkjubænda í janúar 2008.
Amennar umræður voru um þessi mál og voru menn sammála um að skoðankannanir væru nauðsynlegar með vissu millibili til að geta fylgst betur með markaðnum.
Ákveðið var að halda næsta fund í Ylrækt hjá Bjarna Finnssyni í maí.
Fundi slitið kl. 18:00.