Aðalfundur Félags blómabænda haldinn á Hótel Örk 1. apríl 2008 kl: 16:00.
Mættir voru: Bjarni Jónsson, fundarstjóri, Sveinn Sæland, Ragnar Sverrisson, Gunnar Þorgeirsson, Gísli Jóhannsson, Birgir Birgisson, Axel Sæland, Erlingur Ólafsson, Auðunn Árnason, Bjarni Finnsson, Gústaf Sæland, Sigurður Moritzson og Helga Sigurðardóttir.
Dagskrá:
1. Skýrsla formanna var kynnt. Sveinn Sæland fór yfir starfsemi sl. árs meðal annars hvað fundir heima á garðykjustöðvunum hafa reynst vel bændur hafa komið saman og skoða ræktun hjá hvor öðrum. Einnig fór hann yfir fm fjölda undir gleri, árið 2005 voru 49.000 m2 en 2007 46.700 m2.
2. Gunnar Þorgeirsson fór yfir skýrslu Markaðssjóðs. Krónuverkefnið tókst vel, áberandi síbylja í útvarpi. Beðið var um nánari sundurliðun á styrkjum v/sýnikennslu. Ánægja var með greinaskrif í blöðin s.s. Hafsteins Hafliðasonar.
Ákveðið var að halda áfram með krónuverkefnið 1/3 kæmi frá búðunum og 2/3 frá framleiðendum. Gott væri að sjá þróuninna í þá átt að kaupa blóm ekki vegna einhvers sérstaks tilefnis og að gleðja. Aukning auglýsinga leiðir af sér meiri sölu.
Á að leifa notkun fánarandarinnar, þar eru skiptar skoðanir innan Sambands Garðyrkjubænda og blómaframleiðanda.
3. Kosningar í stjórn. Stjórn Blómaframleiðanda var endurkjörin Sveinn Sæland formaður, Ragnar Sverrisson og Helga Sigurðardóttir.
Stjórn Markaðssjóðs garðyrkjubænda: Gunnar Þorgeirsson, formaður, Ragnar Sverrisson, Sveinn Sæland fór úr stjórn og Gísli Jóhannsson kom inn. Samþykkt.
4. Fulltrúi frá Capacent Gallup kynnti niðurstöðu markaðsrannsóknar sem gerð var að frumkvæði Markaðsnefndar í janúar 2008. Þorsteinn Björnsson kynnti niðurstöður . Árið 2000 og 2006 voru gerðar samskonar kannanir, sem sýndu að salan hefur dregist saman. Fundarmenn lýstu yfir áhyggjum yfir minnkandi sölu afskorinna blóma.
5.Magnús Ágústsson fer yfir stöðu notkunar varnarefna í blómarækt. Magnús forfallaðist og gat því ekki frætt okkur um varnarefnin.
6.Þátttaka blómageirans í Landbúnaðarsýningu á Hellu í ágúst 2008. Sveinn skýrði frá aðkomu blómaframleiðanda að Landbúnaðarsýningunni á Hellu sem haldin verður í nýju Reiðhöllinni á Hellu 22.-24. ágúst. Samþykkt var að taka þátt í henni með Grænmetis- og Garðplöntuframleiðundum. Í boði er pláss í anddyrinu með útgang til hliðar út í tjald þar sem garðplantan gæti verið með sínar plöntur. Eftir á að semja um verð fyrir sýningarsvæðið. Samið hefur verið við Júlíönu Einarsdóttur blómaskreytir um að setja upp og skreyta svæðið.
7. Önnur mál. a) Fánaröndin. Mikilvægt fyrir innlenda framleiðslu að merkja vöru sína með Fánaröndinni og nota hana rétt. Bjarni Jónsson sagði að það hefði tekið Sölufélagið 5 ár að byggja upp Fánaröndina. Fánaröndin er skrásett vörumerki og ber ekki að nota á erlenda framleiðslu og umbúðir. b) Rætt var um að hækka framlagið í Markaðssjóðinn en ákveðið var að bíða með það.
Fundi slitið 18:30.