22. september 2009 | 13:00
| Fréttir

Þjófnaður úr gróðurhúsum. Hvað er til ráða?

Vegna tíðra innbrota í gróðurhús á undanförnum misserum og árum og afleiðingar þeirra sem eru fjárhagslegt- og tilfinningalegt tjón hefur stjórn Sambands garðyrkjubænda ákveðið að efna til fundar um vandan. Fundurinn verður haldinn á Hótel Selfossi (suðursalur) – 30. september kl. 15:00. Reynt verður að svara spurningunum: Hvað verður um lampana þegar þjófarnir nást? Er hægt að fá þá til baka? Er til lausn sem hindrar innbrot af þessu tæi? Hvað getur nærsamfélagið gert til að koma í veg fyrir innbrot?

DAGSKRÁ:

15:00-15:10  Innbrot í gróðurhús
Sveinn Sæland, garðyrkjubóndi Espiflöt

15:10-15:25 Er hægt að koma í veg fyrir innbrot?
Oddur Árnason, Lögreglan Selfossi

15:25-15:45 Hvað geta sveitarfélög gert til að koma í veg fyrir innbrot?
Ísólfur Gylfi Pálmason, Hrunamannahreppi, og Valtýr Valtýsson, Bláskógarbyggð

15:45-16:00  Lausnir öryggisfyrirtækja
Valbjörg Ósk Óladóttir, Öryggismiðstöðin, Þorsteinn G. Hilmarsson, Securitas, og Björgvin Þór Sigurólason, Nortek.

16:00-17:00  Almennar umræður og fyrirspurnir

Kaffiveitingar

Fundastjóri: Bjarni Jónsson

Til baka
Prentvæn útgáfa


Samband garðyrkjubænda - Bændahöllinni við Hagatorg - 107 Reykjavík - Sími 563 0328, 896 8101 - gardyrkja@gardyrkja.is
Hafa samband | Veftré