19. október 2009 | 09:36
| Fréttir

Haustfundur Sambands garðyrkjubænda 2009

Styttast fer í árlegan haustfund Sambands garðyrkjubænda með áhugaverðum erindum. Dagsskrá er ekki fullmótuð ennþá en verður send út tímanlega en fundurinn verður haldinn föstudaginn 13. nóvember kl. 13-17 á Hótel Sögu. Auk fundarins er vakin athygli á öðrum atriðum tengdum fundinum. Í fyrsta skipti munu fyrirtæki kynna þjónustu sína fyrir garðyrkjubændum og verður sér salur fyrir hana. Eftir fundinn verður boðið uppá léttar veitingar. Einnig er gert ráð fyrir sameiginlegum málsverði um kvöldið frá kl. 19.00 og verður boðið upp á þriggja rétta matseðil á aðeins 6.400 kr á manninn! Fyrir þá sem vilja gista er boðið uppá gistingu á hótelinu á frábæru verði!

Til baka
Prentvæn útgáfa


Samband garðyrkjubænda - Bændahöllinni við Hagatorg - 107 Reykjavík - Sími 563 0328, 896 8101 - gardyrkja@gardyrkja.is
Hafa samband | Veftré