23. júní 2010 | 10:39
| Fréttir

Blóm í bæ í Hveragerði 25-27. júní
Sýningin "Blóm í bæ" í Hveragerði verður haldin helgina 25-27. júní. Þetta er annað árið sem hún er haldin en sýningin í fyrra heppnaðist einstaklega vel og talið að meira en 30.000 gestir hafi sótt hana. Samband garðyrkjubænda styrkir sýninguna en það eru blómabændur og garðplöntuframleiðendur sem bera hita og þunga framlags garðyrkjubænda og von er á að sýningar þeirra verði jafn glæsilegar og í fyrra. Þema sýningarinnar í ár er "Börn og ævintýri. Íbúar Hveragerðis munu skreyta garða sína og keppa í ýmsum greinum s.s. flottustu blómaskreytinguna í skóm og stígvélum! Einnig verður keppt í sampottun í kerjum. Einhverjir íbúar munu bjóða uppá grænmetissúpu í görðum sínum.
Til baka
Prentvæn útgáfa


Samband garðyrkjubænda - Bændahöllinni við Hagatorg - 107 Reykjavík - Sími 563 0328, 896 8101 - gardyrkja@gardyrkja.is
Hafa samband | Veftré