18. febrúar 2009 | 14:32

Aðalfundur Félags garðplöntuframleiðenda 7. apríl 2008

FUNDAGERÐ:

Aðalfundur Félags garðplöntuframleiðenda haldinn 7. april á skrifstofu Búnaðarsambands Suðurlands á Selfossi.  Fundurinn hófst kl. l5.30

Mættir eru:  Vernharður Gunnarsson, Ólafur Njálsson, Hjörtína Guðmundsdóttir, Katrín Ásgrímsdóttir, Börn Sigurbjörnsson,  Guðmundur Vernharðsson, Sigríður Sigurðardóttir, Guðbjörn Oddur Bjarnason, Sigurður Ásgeirsson og Helga R. Pálsdóttir.  Einnig sat fundinn Bjarni Jónsson framkv.st. S.G.
 
l. Skýrsla stjórnar. Vernharður Gunnarsson fór yfir helstu mál sem unnið hefur verið að á liðnu ári.
Fyrir rúmlega ári síðan fékkst endanleg niðurstaða úr viðræðum okkar við Landbúnaðarráðuneytið um mótvægisaðgerðir vegna tollaniðurfellinga á garðplöntur.  16.7 milljónum var lofað til markaðsaðgerða árið 2007 og 2008 og 12 milljónum til útvalsathugana næstu 3 árin.
Auglýsinga og kynningamál.  Stofnuð var markaðsnefnd sem fékk það verkefni að nýta það fé sem fékkst til markaðsaðgerða. Í nefndinni eru Ingibjörg Sigmundsdóttir, Sigríður Sigurðardóttir og Helga Pálsdóttir.  Helga Hauksd. framkv.stj. S.G.  starfaði einnig með hópnum.  Íslenska auglýsingastofan var fengin til að vinna auglýsingar og voru þær keyrðar í dagblöðum, tímaritum, sjónvarpi og útvarpi.  Ekki má gleyma framlagi Björns bónda í aulýsingunum en hann var aðalmyndefnið. Var það almannarómur að auglýsingaátakið hefði tekist vel.
Yndisgróður.  Framlagið sem fékkst til úrvalsathugana er nýtt í verkefni sem fengið hefur nafnið Yndisgróður. Landbúnaðarháskólanum var falin umsjón og framkvæmd þessa verkefnis en jafnframt myndaður stýrihópur frá ýmsum hagsmunaaðilum til að varða veginn. Samson B. Harðarson er  verkefnisstjóri og   Jón Kr. Arnarson er starfsmaður verkefnisins.  Guðmundur Vernharðsson er fulltrúi Félags garðplöntuframleiðenda í nefndinni. Sótt var um styrk til Framleiðnisjóðs og eins hafa sveitarfélög og landbúnaðarháskólinn lagt í verkefnið. Garðplöntuframleiðendur munu skaffa efnivið til prófana.  Miklar vonir eru bundnar við verkefnið en þetta er búið að vera draumaverkefni framleiðenda í yfir 20 ár.

Merkingarmál á sölusvæðum gróðrarstöðvanna höfðu lengi verið á verkefnalista félagsins en í það verkefni var ráðist síðastliðinn vetur. Í desember 2006 var sótt um styrk til Framleiðnisjóðs vegna gagnagrunns fyrir sölumerkingar á garðplöntur.  Þaðan fengum við  l.8 milljónir og síðan styrkti Samband garðyrkjubænda verkefnið um l milljón.  Verkefnið hlaut nafnið Selja.
Búnir voru til notkunarskilmálar fyrir Selju og hafa allir félagsmenn rétt til notkunar á gagnagrunninum ef þeir greiða búnaðargjald. Síðan var samið við Samband garðyrkjubænda um notkun á fánaröndinni til notkunar á þær plöntur sem teljast íslensk ræktun til aðgreiningar frá innfluttu.  Notendur bæði Selju og fánarandarinnar verða að skrifa undir yfirlýsingu um að réttri meðferð sé heitið.
Hugbúnaður til að vinna gagnagrunninn í var keyptur frá Brandsoft og einnig fjárfesti félagið i prentara. Nokkrir félgasmenn fjárfestu í þessum búnaði og geta þá prentað út sjálfir en aðrir geta nýtt sér þjónustu félagsins.  Guðrún Þórðardóttir var ráðinn til að vinna verkefnið.  Jafnframt var gerður samningur við Guðríði Helgadóttur til fimm ára um afnot af myndum sem hún hefur aflað sér í gegnum árin. Gróðrarstöðvarnar Mörk og Storð lögðu fram sína gagnagrunna um plöntulýsingar sem Seljugrunnurinn hefur verið unnin upp úr.
Merkingarnar voru teknar í notkun síðastiðið vor og unnu sitt verk síðastliðið sumar öllum til gleði og hagsbóta.

Fyrir 7 árum var gerð skoðanakönnun á vegum S.G. sem Gallup sá um. Ýmsar forvitnilegar niðurstöður komu þá fram.  Nú hafa blómabændur nýverið gert skoðanakönnun og garðplöntuframleiðendum stendur til boða að gera slíka könnun en S.G. er tilbúið að styrkja könnunina allt að einni milljón.  Taka þarf ákvörðun um hvort félagið vill láta gera slíka  könnun og þá hvenær.

Að lokum gerði Vernharður að umtalsefni þann langa tíma sem líður oftast frá aðalfundi til fyrsta félagsfundar að hausti.  Æskilegt væri að halda uppi meira starfi yfir sumarmánuðina en gengið hefur misvel að finna tíma til þess.

2. Skýrsla gjaldkera, Guðmundar Vernharðssonar
Guðmundur las reikninga félagsins. Staða á reikningum félagsins 7. apríl 2008 inngeign kr. 520.845   Reikningarnir samþykktir samhljóða.

3. Kosningar
Kjósa átti meðstjórnendur. Guðmundur Vernharðsson og Helga Ragna Pálsdóttir gáfu bæði kost á sér til áframhaldandi setu og var það samþykkt með lófaklappi.

4. Félagsgjöld
Félagsgjöld hafa ekki verið innheimt síðan árið 2003 vegna góðrar fjárhagsstöðu félagsins.
Nú var ákveðið að innheimta félagsgjöld fyrir árið 2008 samkvæmt sömu reiknireglu og árið 2003 þ.e. út frá fjölda starfsmanna,  en hækka gjaldið um 20 %.
Kr. l8.000 þar sem er einn starfsmaður            (50 vinnuvikur)
Kr. 30.000 þar sem eru 2-3 starfsmenn             (50-l50 vinnuvikur)
Kr. 42.000 þar sem eru 3 eða fl. starfsmenn      (150 vinnuvikur eða fl.)

5. Önnur mál
a. Lagabreytingar
Stjórn gerði eftirfarandi tillögur að lagabreytingum til aðalfundar og voru þær samþykktar.

4 gr. Félagið er aðili að Sambandi garðyrkjubænda, þannig að þeir sem gerast félagar í Félagi garðplöntuframleiðenda gerast sjálfkrafa félagar í Sambandi garðyrkjubænda.

4.gr. yrði svona:  Félagið er aðili að Sambandi garðyrkjubænda og á formaður Félags garðplöntuframleiðenda sæti í stórn Sambands garðyrkjubænda.

10 gr.  Félagsfundur skal haldinn eins oft og þurfa þykir, skal hann þá auglýstur tímanlega annaðhvort með bréfi eða símleiðis. Allir félagar hafa sama atkvæðisrétt.

10 gr. yrði svona: Félgasfundur skal haldinn eins oft og þurfa þykir, skal hann auglýstur tímanlega annaðhvort með bréfi, tölvupósti eða símleiðis. Allir félagar hafa sama atkvæðisrétt.

11. gr. Aðalfundur skal haldinn árlega, fyrir l. maí.
Dagskrá aðalfundar skal innihalda m.a.
a. Starf stjórnar. Skýrsla liðins árs.
b. Reikningar gjaldkera lagðir til samþykktar.
c. Kosningar. Annað árið formann, hitt árið meðstjórnendur og tvo varamenn.
d. Félagsgjald
e. Skýrsla fulltrúa í fagráði Mógilsár.
f. Skýrsla  fulltrúa í endurmenntunarnefnd Garðyrkjuskóla ríkisins.
g. Skýrsla fulltrúa tilraunaráðs Garðyrkjuskóla ríkisins.
h. Önnur mál

11. gr. yrði svona:Aðalfundur skal haldinn árlega, fyrir l. maí þó aldrei síðar en aðalfundur Sambands garðyrkjubænda.
Liður e. Liður f og liður g fellur út.     Annars óbreytt. 

12 gr. Aðalfundur skal boðaður með hálfs mánaðar fyrirvara, bréflega. Í fundarboði skal tilgreina dagskrá. Aðalfundur er löglegur sé löglega til hans boðað.

12. gr. yrði svona:
Aðalfundur skal boðaður með hálfs mánaðar fyrirvara, bréflega eða í tölvupósti. Í fundarboði skal tilgreina dagskrá. Aðalfundur er löglegur sé löglega til hans boðað.

b. Viðskiptaskilmálar
Guðmundur Vernharðsson  ræddi mikilvægi þess að viðskiptaskilmálar Félags garðplöntuframleiðenda verði teknir í notkun en þeir voru samþykktir á aðalfundi félagsins árið 2004.  Töluvert hefur borið á að viðskiptavinir standi ekki við pantanir, breyti þeim eða þær séu ekki sóttar og ávallt virðist sjálfsagt að framleiðandinn beri skaðann.  Guðmundur ásamt Birni Sigurbjörnssyni og Guðbirni Oddi hafa nú yfirlesið skilmálana og gert smávægilegar tillögur að breytingum. Bjarni, framkv.stjóri S.G. tók að sér að fá lögfræðing S.G. til að yfirlesa samningana. 
Fundarmenn samþykktu að taka upp notkun viðskiptaskilmálanna í vor og stjórn falið að kynna málið fyrir hlutaðeigandi aðilum s.s. skrúðgarðyrkumönnum og landslagsarkitektum.

c. Yndisgróður
Samson B. Harðarson og Jón Kr. Arnarson voru mættir á fundinn til að kynna Yndisgróðurverkefnið.  Verkefnið  snýst um úrvalsathuganir, langþráðan draum garðplöntuframleiðenda.  Verkefnið fór af stað síðastliðið vor í framhaldi af því að landbúnaðaryfirvöld lögðu fram fjármagn til úrvalsathugana. Félagarnir kynntu stöðu verkefnisins en búið er að flokka plöntur eftir mikilvægi í 5 flokka. 

A plöntur: Úrvals klónn eða fræuppruni
B plöntur: Mikilvægar plöntur og álitlegur klónn eða fræuppruni
C plöntur: Mikilvæg tegund og vísbendingar um áhugaverðan klón eða fræuppruna
D plöntur: Mikilvæg tegund en lítið vitað um skilgreinda klóna eða fræuppruna
O plöntur: Plöntur sem ekki eru á listanum yfir mikilvægar plöntur en áhugavert væri að setja í tilraunir eða klónasafn.

Í vor stendur til að planta út í kónasafn á Reykjum í Ölflusi og einnig er verið að vinna að staðsetningu tilraunareita úti á landi.  Gert er ráð fyrir að garðplöntuframleiðendur leggi fram plöntur í klónasafn og tilraunareiti að einhverju leiti. 

Til stendur að verkefnið birti á heimasíðu Landbúnaðarháskálans upplýsingar um verkefnið og m.a. lista yfir plöntur sem hlotið hafa “viðurkenningu” sem úrvalsplöntur.   Umræður urðu um þennan lista en mikilvægt er að ekki sé birtur opinberlega listi nema í samvinnu við framleiðendur og þær plöntur sem þar eru séu almennt í framleiðslu eða framleiðendum gefinn kostur á að koma þeim í ræktun.  Guðmundur Vernharðsson og Ólafur Njálsson eiga sæti í nefndinni sem heldur utan um verkefnið og var þeim falið að gæta “hagsmuna” framleiðenda í verkefninu.  
 
 
Fundi slitið kl. l9.00
Helga Pálsd. fundarr.

Til baka
Prentvæn útgáfa


Samband garðyrkjubænda - Bændahöllinni við Hagatorg - 107 Reykjavík- Sími 563 0328, 896 8101- gardyrkja@gardyrkja.is
Hafa samband | Veftré