FUNDAGERÐ:
Mættir eru: Vernharður Gunnarsson, Guðmundur Vernharðsson, Helga Pálsdóttir, Ingibjörg Sigmundsdóttir og Sigríður Sigurðardóttir auk Bjarna Jónssonar framkv.stjóra S.G.
1. Nordisk planteskolekongress. Bjarni lagði fram drög að dagskrá fyrir Norrænu garðplönturáðstefnuna sem haldinn verður 19-21. ágúst 2009 Dagskráin yfirfarin og Bjarna falið að vinna málið áfram.
2. Auglýsinga- og kynningarmál. Rætt um hugsanlega vefsíðugerð Félags garðplöntuframleiðenda. Fjármagn til ráðstöfunar er 5.9 milljónir.
Hvernig viljum við hafa vefinn? Þetta á að vera upplýsingavefur um plöntur.
Fyrir hvern á vefurinn að vera? Neytendur.
Fundarmenn sammála um að kanna möguleika á að láta vinna vefsíðu fyrir félagið, vinna að því að afla mynda í Seljugrunninn sem þá yrðu nýttar á vefsíðunni og síðan þyrfti að nýta hluta fjármagnsins til að auglýsa vefsíðuna í vor.
Helgu og Guðmundi falið að ræða við forsvarsmenn Yndisgróðurs er þeir eru komnir af stað með vefsíðugerð í tengslum við Yndisgróður. Hugsanlegt er að hægt sé að vinna þessar vefsíður saman fyrir bæði verkefnin.
Stjórn falið að ganga frá samningum vegna mynda við Hólmfríði Siguðrðardóttur og Guðríði Helgadóttur.
Fundarritari
Helga Pálsdóttir