18. febrúar 2009 | 14:38

Félagsfundur garðplöntuframleiðenda 30. október 2008

FUNDARGERÐ
Félagsfundur i Félagi garðplöntuframleiðenda haldinn í Sandgerði 30. október 2008   
Fundurinn hófst kl. l4.30 en þá hittust félagsmenn í Gróðrarstöðinni Glitbrá. Gunnhildur Ása eigandi stöðvarinnar  tók á móti hópnum.  Hún sýndi hópnum stöðina og síðan var farið í skoðunarferð þar sem Gunnhildur sýndi hópnum  tvo tilraunareiti  sem í hefur verið plantað víði af hinum ýmsu tegundum.   Að skoðunarferð lokinn hófst formlegur fundur heima hjá Gunnhildi Ásu þar sem hópurinn naut góðra veitinga.

Mættir eru:  Vernharður Gunnarsson, Guðbjörn Oddur Bjarnason, Ólafur Njálsson, Guðmundur Vernharðsson, Sigríður Sigurðardóttir, Sædís Guðlaugsdóttir, Gunnhildur Ása Sigurðardóttir og Helga R. Pálsdóttir.

Vernharður Gunnarsson setti fund og kynnti dagskrá.
  
1. Auglýsinga- og kynningarmál.  Helga Pálsdóttir kynnti stöðu mála.  Þegar ljóst varð síðastliðið vor að ekki yrði að gerð sjónvarpsþátta um garðyrkjutengt efni eins og við höfðum kannað möguleika á tók stjórn og auglýsinganefnd ákvörðun um að kanna möguleika á að láta vinna heimasíðu fyrir Félag garðplöntuframleiðenda og nota inn á heimasíðuna þann gagnagrunn sem félagið á,  Seljuna.  Verið er að kanna hugsanlegt samstarf garðplöntuframleiðenda við Yndisgróður um heimasíðugerð en Yndisgróður er kominn vel af stað við það verkefni.  Helga fékk til liðs við sig Guðrúnu Þórðardóttur starfsmann okkar við Selju og Drífu Jónsdóttur starfsmann hjá Lbhí. til að aðstoða  við framgang verkefnisins en Drífa starfaði lengi sem kerfisfræðingur og talar það tölvumál sem við þurfum á að halda.  Helga lagði fyrir fundinn hugmynd að hvaða leitarmöguleikar ættu að vera á heimasíðu garðplöntuframleiðenda.  Umræður urðu um málið og voru fundarmenn sammála um að ef þetta verkefni næði fram að ganga væri þetta langlíf nýting á fjármagninu sem við höfum til ráðstöfunar. Stjórn og auglýsinganefnd falið að vinna að málinu áfram.
2. Norræn ráðstefna garðplöntuframleiðenda á Íslandi 19-21. ágúst 2009.   Guðmundur Vernharðsson kynnti dagskrá ráðstefnunnar sem stórn félagsins hefur unnið í samstarfi við framkvæmdastjóra Samband garðyrkjubænda. Þessi ráðstefna er haldin 3 hvert ár, svíar sáu um móttöku síðast og danir þar áður. Nú er komið að okkur að taka á móti kollegum okkar.  Guðmundur vakti athygli á því að gaman væri að sem allra flestir garðplöntuframleiðendur gætu tekið þátti í dagskránni. 
3. Garðyrkju- og blómasýning í Hveragerði 26-28. júní 2009   Helga Pálsdóttir sagði frá fyrirhugaðri sýningu en hún fór ásamt Ingibjörgu Sigmundsdóttur á kynningarfund sem haldin var á Reykjum.  Starfsmaður Hveragerðisbæjar, Elfa Dögg Þórðardóttir óskaði eftir þátttöku Sambands garðyrkjubænda í sýningunni og boðaði framkv.stj. S.G. fulltrúa frá öllum aðildarfélögunum til fundarins.  Elfa hyggst virkja græna geirann til þátttöku, ákveðin svæði í bænum verða lögð til sem sýningarsvæði en jafnframt mun Garðrkjuskólinn leggja fram aðstöðu en hann verður 70 ára á næsta ári.  Til tals kom að garðplöntuframleiðendur sæu um að prýða hringtorgið í miðbænum með sinni framleiðslu.      Fundarmenn ræddu málið. Fram kom m.a. að á  þessum tíma er ennþá álagstími í stöðvunum, töluvert magn þarf að plöntum til að gera svona svæði fallegt, merkja þarf tegundir og einhver þyrfti að vera á svæðinu sem svarað gæti fyrirspurnum og frætt um garðplöntuframleiðslu.  Ákveðið að fresta ákvörðun um þátttöku og sjá hvernig málum fram vindur.
4. Önnur mál.
a. Vernharður sagði frá Gallup könnun sem er að fara í gang.  10 spurningar sem tengjast auglýsinga- og kynningarmálum  verða lagðar fyrir þátttakendur. Niðurstaðna er að vænta um miðjan nóvember.
b. Tollamál.  Vernharður sagði frá að búið væri að ganga frá því að sumarbóm verði flokkuð með pottaplöntum þ.e. á þeim verður 30% tollur +stykkjagjald.
c. Vernharður minnti á haustfund S.G. sem haldinn verður 7. nóvember næstkomandi.
d. Ólafur Njálsson sagði frá lerkitilraun en tilraunareiturinn er í Holtsdal á Síðu.  Þar kemur Evrópulerki mjög vel út. Rússa- og Síberíulerkið er mikið síðra sum jafnvel dauð.  Einnig vakti athygli Ólafs eitt kvæmi af Mýrarlerki sem hefur staðið sig betur en Rússa- og Síberíulerki. Þarna vex einnig Silkifura frá Búlgaríu og eru þær orðnar tæpur metri á hæð.
e. Ólafur Njálsson útdeildi Garðahlynsfræi til félagsmanna.  Fræið er af plöntu í Nátthaga sem Óli hefur mætur á.
f.  Sædís Gulaugsdóttir óskaði eftir hugmyndum um hvað hægt sé að gera fyrir Garðyrkjuskólann á Sumardaginn fyrsta er hún er í Hollvinasamtökum skólans. Sædís upplýsti að skólabyggingin hefði verið tekin af dauðadeildinni eftir jarðskjálftann í vor en byggingin skemmdist ótrúlega lítið í skjálftanum.  Sú hugmynd fæddist að stofna söfnunarsjóð fyrir gamla nemendur, söfnunarféð væri hægt að nýta til lagfæringa á húsnæði skólans.

Fundi slitið kl. l9.15
Helga Pálsd. fundarr.
 

Til baka
Prentvæn útgáfa


Samband garðyrkjubænda - Bændahöllinni við Hagatorg - 107 Reykjavík- Sími 563 0328, 896 8101- gardyrkja@gardyrkja.is
Hafa samband | Veftré