18. febrúar 2009 | 14:39

Stjórnarfundur garðplöntuframleiðenda 25. nóvember 2008
Stjórnarfundur í Félagi garðplöntuframleiðenda haldinn á Reykjum 25. nóvember 2008 kl. 16.00
Mættir eru: Vernharður Gunnarsson, Guðmundur Vernharðsson, Helga Ragna Pálsdóttir auk þess Ingibjörg Sigmundsdóttir og Sigríður Sigurðardóttir úr auglýsinganefnd félagsins og Bjarni Jónsson framkvæmdastjóri Sambands garðyrkjubænda.
Dagskrá:  Vefsíðugerð Félags garðplöntuframleiðenda
 Á fundinn voru mættar Guðrún Þórðardóttir starfsmaður félagsins varðandi Seljuverkefnið og Drífa Jónsdóttir en hún hefur lagt félaginu  lið varðandi undirbúning við vefsíðugerð.
Helga Pálsdóttir kynnti stöðu verkefnisins fyrir fundarmönnum. Helga og Guðmundur Vernharðsson hittu forsvarsmenn Yndisgróðurs á Reykjum 23. október þar sem þeir kynntu stöðu vefsíðuvinnu í tengslum við Yndisgróðurverkefnið. Rætt var um möguleika á að vinna vefsíðu Yndisgróðurs og Félags garðplöntuframleiðenda á einhvern hátt saman og ákveðið að skoða þann möguleika í framhaldi af fundinum.   
Helga, Guðrún og Drífa hittust á fundi 27. október í Kjarri.  Skoðaðar voru fjölmargar heimasíður sem tengjast plöntum og að því loknu settar á blað hugmyndir að því hvernig við viljum sjá heimasíðu Félags garðplöntuframleiðenda. Þessar hugmyndir  hefur Drífa útfært og mun nú kynna fyrir fundargestum.
Drífa kynnti fyrir fundinum fyrstu hugmyndir að vefsíðu Félags garðplöntuframleiðenda.  Fundarmönnum leist vel á hugmyndirnar og var Helgu, Guðrúnu og Drífu falið að vinna málið áfram.
Til baka
Prentvæn útgáfa


Samband garðyrkjubænda - Bændahöllinni við Hagatorg - 107 Reykjavík- Sími 563 0328, 896 8101- gardyrkja@gardyrkja.is
Hafa samband | Veftré