18. febrúar 2009 | 14:40

Kynning á Yndisgróðurverkefni 4. desember 2008

Kynningarfundur um Yndisgróðurverkefnið haldinn  á RALA   4. desember 2008 kl. l0.00
Forsvarsmenn Yndisgróðurs boðuðu stjórn og félagsmenn Félags garðplöntuframleiðenda til kynningarfundar um Yndisgróðurverkefnið.
Á fundinn mættu  frá Félagi garðplöntuframleiðenda, Guðmundur Vernharðsson, Helga Ragna Pálsdóttir og Ólafur Njálsson, tveir starfsmenn Ræktunarstöðvar Reykjavíkur sátu fundinn  en starfsmenn Yndisgróðurs Samson B. Harðarson, Jón Kr. Arnarson og Anna Ingimarsdóttir kynntu verkefnið fyrir fundargestum.
Samson sagði frá verkefninu og þróun þess.  Búið er að safna saman yrkjum og planta út í tilraunareit á Reykjum og fyrirhugað er að planta út í reiti víðar á landinu.  Loforð fyrir fjármagni er til 3 ára en mikilvægt er að gera verkefnið sýnilegt til að auðveldara sé að fá áframhaldandi styrki til verkefnisins. Hluti af verkefninu er að safna saman upplýsingum og skrá í gagnagrunn.  Töluverð vinna hefur verið lögð í vinnu við vefsíðu Yndisgróðurs en ekki er búið að hanna hana endanlega.  Anna kynnti hugmyndir að vefsíðunni en mörg atriði þar eru óleyst.  Umræður urðu um vefsíðugerðina og hugsanlegan möguleika á samvinnu við Félag garðplöntuframleiðenda. Fundarmenn sammála um að skoða þurfi þau mál enn betur. 
Fundi slitið kl. l2.00    Fundarritari Helga Pálsd.
Til baka
Prentvæn útgáfa


Samband garðyrkjubænda - Bændahöllinni við Hagatorg - 107 Reykjavík- Sími 563 0328, 896 8101- gardyrkja@gardyrkja.is
Hafa samband | Veftré