Handbók - Íslenskar flokkunarreglur fyrir grænmeti


24. janúar 2008 | 16:04

Íssalat, niðurstöðuskýrsla

Í garðyrkjustöðinni að Gilsbakka á Flúðum ræktar Árni Magnús Hannesson m.a. íssalat.  Árni hefur náð umtalsverðum árangri í ræktuninni þrátt fyrir rysjótta tíð og óvenjuleg árferði.  Sl. sumar notaði hann svartan dúk til útplöntunar í og akrýldúk yfir plönturnar og reyndist það mjög vel.  Svarti dúkurinn heldur niðri illgresi og eykur hita bæði í jarðvegi og í kringum plönturnar meðan á vexti stendur.  Prófun Árna var styrkt af aðlögunarfé grænmetisframleiðenda.  Hér má finna nánari upplýsingar um verkefnið:  Niðurstöðuskýrsla

Mikið er flutt inn til landsins af íssalati á hverju ári, yfir 1100 tonn og því alveg ljóst að nægur markaður er fyrir hendi fyrir íslenskt íssalat.

Myndin af íssalatinu er frá Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur 

Til baka
Prentvæn útgáfa


Samband garðyrkjubænda - Bændahöllinni við Hagatorg - 107 Reykjavík- Sími 563 0328, 896 8101- gardyrkja@gardyrkja.is
Hafa samband | Veftré