Handbók - Íslenskar flokkunarreglur fyrir grænmeti


18. febrúar 2008 | 15:16

3 námskeið í mars: Ræktun káls og varnir; Framleiðsla matarkartaflna; Notkun varnarefna
 
Endurmenntunardeild Landbúnaðarháskóla Íslands verður með 3 námskeið nú í mars sem geta verið athygliverð fyrir garðyrkjubændur.  Heiti námskeiðanna eru: Ræktun káls og varnir gegn sjúkdómum og meindýrum í rætkun; Framleiðsla matarkartaflna - getum við bætt okkur?; og Notkun varnarefna í landbúnaði og garðyrkju.  Fyrstu 2 námskeiðin eru styrkt af aðlögunarsamningi garðyrkjubænda.
 
Ræktun káls og varnir gegn sjúkdómum og meindýrum í ræktun
Í samstarfi við Bændasamtök Íslands og með stuðningi frá Sambandi garðyrkjubænda
 
Námskeiðið er einkum ætlað þeim er stunda ræktun eða hyggjast hefja ræktun á káltegundum og vilja auka fróðleik sinn um ýmsar aðferðir til að bæta gæði ræktunarinnar og geymsluaðferðir
Farið verður yfir helstu ræktunarþætti og afsetningu káls í Danmörku. Fjallað verður um aðferðir til að auka ræktunaröryggi hér á landi m.t.t. skjóls og jarðvinnslu. Einnig verður fjallað um notkun áburðar við ræktun, niðurfellingu eða dreifingu. Komið verður inn á helstu meindýr (kálmöl) og sjúkdóma (kálæxli) í ræktuninni, með sérstakri áherslu á kálflugu og hvaða ráð eru gegn henni. Að lokum verður fjallað um uppskeru og helstu úrræði við geymslu.

Kennarar:  Ole H. Scharff konsulent Dansk Landbrugsrådgivning og Magnús Ágústsson landsráðunautur í garðyrkju.

Tími:  Lau. 8. mars kl 13:00-17:00 á Reykjum, Ölfusi (5,5 kennslustundir)
 
Verð8500 kr. (Hádegisverður kl 12 og kaffi).

Skráningarfrestur er til 2. mars.

Staðfestingargjald:  Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 2.000 kr. (óafturkræft) á reikning 1103-26-4237, kt. 411204-3590.

Skráningar á endurmenntun@lbhi.is (fram komi nafn, kennitala, heimili, sími, hvaða námskeið) eða í síma 433 5000.
 
 
Framleiðsla matarkartaflna–Getum við bætt okkur?
Í samstarfi við Bændasamtök Íslands og með stuðningi frá Sambandi garðyrkjubænda
 
Námskeiðið er einkum ætlað kartöfluframleiðendum. Hentar vel þeim sem vilja fræðast um mismunandi aðferðir til að bæta gæði ræktunarinnar sem og að auka gæði geymslna. Í upphafi námskeiðs verður fjallað lítillega um ræktun og afsetningu kartaflna í Danmörku. Þá verður fjallað um ræktunarskilyrði hér á landi og aðferðir til að tryggja ræktunaröryggi á stuttum vaxtartíma. Fjallað verður m.a. um meðhöndlun á útsæði. Hvað getum við lært af Dönum þegar horft er til jarðvinnslu, áburðargjafar og illgresiseyðingar í tengslum við kartöflurækt? Að lokum verður fjallað um helstu sjúkdóma, varnir gegn þeim og farið yfir rekstur (kostnað á móti tekjum) í greininni.
 
Kennarar: Ole H. Scharff, konsulent Dansk Landbrugsrådgivning og Magnús Ágústsson landsrauðunautur í garðyrkju.
 
Tími: Laugard. 8. mars kl. 09:00-12:00 á Reykjum í Ölfusi (4 kennslustundir)
 
Verð: 6400.- kr. (hádegismatur innifalinn)
 
Skráningarfrestur er til 2. mars
 
Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra kr. 2.000.- (óafturkræft) á reikning 1103-26-4237, kt: 411204-3590
 
Skráningar á endurmenntun@lbhi.is (fram komi nafn, kennitala, heimili, sími, hvaða námskeið) eða í síma 433 5000
 
 
Notkun varnarefna í landbúnaði og garðyrkju
 
Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem vilja öðlast réttindi til að kaupa og nota efni í X og A hættuflokkum. Farið verður yfir helstu skaðvalda sem við er að eiga í ræktun. Hvaða úrræði eru möguleg til að verjast þeim óværum sem við er að eiga. Sagt verður almennt frá samsetningu varnarefna og verkun þeirra og hvernig megi nota þau á sem tryggastan hátt. Kynnt verða lög og reglugerðir er varða notkun á efnum í þessum hættuflokkum. Farið í það hvers konar tæki eru notuð til úðunar, dreifingar og skömmtunar á varnarefnum, ásamt útskýringum á virkni og meðferð tækjanna.
 
Kennarar:  Sigurgeir Ólafsson Matvælastofnun, Elín G. Guðmundsdóttir Umhverfisstofnun, Halldór Sverrisson Lbhí/Skógrækt ríkisins, Guðmundur Halldórsson Landgræðslu ríkisins, Grímur Ólafsson Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar og Kópavogs, Jón Guðmundsson Lbhí, Magnús Ágústsson Bændasamtökum Íslands, Svava Þórðardóttir Háskóla Íslands, Sigríður Jansen Umhverfisstofnun, Jóhannes Helgason Vinnueftirliti ríkisins, Helgi Jóhannesson garðyrkjukandídat og Hjalti Lúðvíksson Frjó.
 
Tími:  Fimmtud. 13. mars kl. 08:30-16:00 og föstud. 14. mars kl. 09:00-16:00 (18 kennslustundir) hjá Lbhí á Keldnaholti, Reykjavík, í fundarsal á 3. hæð
 
Verð:  33.500 kr. Hádegisverður og kaffi báða dagana innifalið
 
Staðfestingargjald:  Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra kr. 5.000.- staðfestingargjald (óafturkræft) á reikninginn 1103-26-4237, kt. 411204-3590
 
Skráningar á endurmenntun@lbhi.is (fram komi nafn, kennitala, heimili,l sími, hvaða námskeið)
Til baka
Prentvæn útgáfa


Samband garðyrkjubænda - Bændahöllinni við Hagatorg - 107 Reykjavík- Sími 563 0328, 896 8101- gardyrkja@gardyrkja.is
Hafa samband | Veftré