18. janúar 2008 | 14:55
| Kartöflur

Nýjungar á ,,Ári kartöflunnar"
 
Margir kartöflubændur vinna nú að því að þróa umbúðir sínar og gera þær ,,neytendavænni”.  Þannig má nú, auk hins hefðbundna 2ja kílóa poka, finna kartöflupoka með 1 kg af íslenskum kartöflum og einnig eins og hálfs kg poka.  Pokarnir eru merktir með afbrigðaheiti, samkv. reglugerð.  Margir kartöflubændur hafa endurnýjað hönnun umbúða sinna og sett á þær fánarönd SG, sem aðgreinir íslensku kartöflurnar greinilega frá innflutningi.  Dæmi um þetta eru kartöflurnar frá Jaðri í Þykkvabæ, en Benedikt Magnússon á Jaðri hefur tekið fánaröndina í notkun.  Auk fánarandarinnar má á pokunum finna uppskriftir af kartöfluréttum, sem er skemmtileg nýbreytni.  Að sjálfsögðu eru svo kartöflurnar stærðarflokkaðar í pokunum.  Auk þess sem íslensku kartöflurnar bragðast alltaf sérlega vel soðnar á einfaldan hátt, eru margar leiðir til að auka fjölbreytnina í matreiðslu þeirra. Hér fyrir neðan eru nokkrar af kartöfluuppskriftunum sem settar hafa verið aftan á kartöflupokana frá Jaðri:
 
Heitt kartöflusalat með Rauðum íslenskum:
Rauðar kartöflur eru sérstaklega þéttar í sér og henta því einkar vel í kartöflusalöt.
1-1,5 kg rauðar kartöflur
2 meðalstórir, rauðir laukar
3-4 msk hunang
Sítrónusafi
50-100 gr smjör til steikingar
 
Sjóðið kartöflurnar í léttsöltuðu vatni í 20-25 mín, kælið.
Hitið pönnu og bræðið smjörið.
Skerið kartöflurnar í tvennt eða fernt, eftir stærð og steikið á pönnunni.
Bætið fljótlega rauðlauknum saman við.
Þegar laukurinn er orðinn mjúkur og sætur skal setja hunangið saman við og sítrónusafa eftir smekk og hræra vel saman. Berist fram heitt.
 
Kalt kartöflusalat með Rauðum íslenskum:
1-1,5 kg rauðar kartöflur
2 dl mæjones
1,5 dl sýrður rjómi
0,5-1 dl ananassafi, niðursoðinn
Sætt sinnep eftir smekk
½ meðalstór púrrulaukur
½ krukka sýrðar gúrkur
 
Sjóðið kartöflurnar í 20-25 mín og kælið.
Hrærið mæjonesið og blandið sýrða rjómanum saman við.
Bætið ananassafanum og sinnepinu út í hræruna.
Skerið púrrulaukinn og sýrðu gúrkurnar og bætið í hræruna.
Að síðustu skal skræla kartöflurnar og skera í báta eða teninga og hræra saman við.
Best er að gera kartöflusalat sem þetta minnst 12 tímum áður en á að neyta þess svo að sósan taki í sig bragð af grænmetinu.
 
Ofnbakaðar kartöflur með Premier:
1,5 kg Premier kartöflur
5-6 hvítlauksgeirar
1 dl Extra virgin ólífuolía
Gróft salt, svartur pipar, þurrkað timian
 
Hitið ofninn í 180°C.
Skerið kartöflurnar í báta eða 1,5cm þykkar sneiðar, hellið ólífuolíu yfir og blandið.
Setjið smjörpappír í ofnskúffu og dreifið kartöflunum í skúffuna.
Sáldrið grófu salti, svörtum pipar og timian yfir kartöflurnar og veltið létt saman.
Bakið í 40-45 mín eða þar til kartöflurnar eru orðnar gullinbrúnar.
Veltið kartöflunum í skúffunni minnst einu sinni á steikingartíma.
Gott er að setja ofnblástur á síðustu 5 mínúturnar.
 
Kartöflumús með Premier:
1-1,5 kg Premier kartöflur
Mjólk
Salt
Sykur eða hunang
 
Flysjið kartöflurnar fyrir suðu og skerið í tvennt.
Sjóðið kartöflurnar í 30 mínútur í létsöltuðu vatni.
Hellið vatninu af og stappið kartöflurnar vel með kartöflustappara í pottinum meðan þær eru heitar.
Bætið mjólk í músina og stappið samhliða til að forðast kekki, þar til ákjósanlegri þykkt er náð. Bætið sykri eða hunangi í eftir smekk og hrærið.
Má einnig krydda með hvítum pipar eftir smekk.
 
Heitt kartöflusalat með gullauga:
1-1,5 kg gullauga
100-200 gr beikonkurl
1-2 laukar
Extra virgin ólífuolía til steikingar
Salt, svartur pipar
 
Sjóðið kartöflurnar í 15-25 mín með hýðinu, kælið eilítið.
Steikið beikonkurlið á pönnu þar til það er stökkt.
Fjarlægið beikonkurlið af pönnunni en skiljið feitina eftir.
Bætið ólífuolíu saman við beikonfeitina, skerið kartöflurnar í báta eða sneiðar og steikið á pönnunni, bætið fljótlega lauknum gróft skornum á pönnuna.
Steikið þar til kartöflurnar eru farnar að brúnast og laukurinn orðinn linur og sætur, bætið þá beikonkurlinu saman við og kryddið eftir smekk með salti og svörtum pipar.
 
Soðnar hátíðarkartöflur, gullauga:
1-1,5 kg. gullauga
1-2 ten. Knorr grænmetiskraftur
1-2 tsk salt
Fersk steinselja
 
Flysjið kartöflurnar fyrir suðu.
Setjið í pott, vatn, grænmetiskraft og salt.
Sjóðið kartöflurnar í kraftinum 20-25 mín.
Hellið vatninu af, setjið kartöflurnar í skál og stráið saxaðri steinselju yfir.
 
Verði ykkur að góðu!
Til baka
Prentvæn útgáfa


Samband garðyrkjubænda - Bændahöllinni við Hagatorg - 107 Reykjavík- Sími 563 0328, 896 8101- gardyrkja@gardyrkja.is
Hafa samband | Veftré