05. febrúar 2008 | 21:29
| Kartöflur

Kartöflubæklingur
 
Kartöflubændur norður í Eyjafirði hafa undanfarna mánuði unnið ötullega að útgáfu bæklings í tilefni árs kartöflunnar í ár. Um er að ræða vandaðan uppskriftabækling sem byrjað verður að dreifa nú í mars. Hitann og þungann af útgáfu bæklingsins hefur Sigríður Bergvinsdóttir. Hún hefur safnað uppskriftunum og þróað þær ásamt því að elda réttina. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir af lystilegum kartöfluréttum Sigríðar.
 
Bæklingurinn er fullur af spennandi og nýstárlegum uppskriftum að ýmiss konar kartöfluréttum.  Honum verður dreift ókeypis til neytenda í verslunum.
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 .
Til baka
Prentvæn útgáfa


Samband garðyrkjubænda - Bændahöllinni við Hagatorg - 107 Reykjavík- Sími 563 0328, 896 8101- gardyrkja@gardyrkja.is
Hafa samband | Veftré