15. febrúar 2008 | 10:10
| Kartöflur

Kartöfludagur í Loppis, Finnlandi
Í bænum Loppis í Suður-Finnlandi, hefur nú, þrjú ár í röð verið haldinn svokallaður ,,Kartöfludagur" á vegum bæjarfélagsins.  Tilgangur uppákomunnar er að fræða um kartöflur sem mikilvæga fæðutegund og einnig sem iðnaðarvöru, en auk þess að vera meinholl fæðutegund eru kartöflur mjög sterkjuríkar og sterkjan nýtt m.a. í pappírsiðnaði í Finnlandi.  Á kartöfludeginum í Loppis, sem að þessu sinni var haldinn 2. febrúar sl, eru sýnd vinsælustu, finnsku afbrigðin en einnig fengnir ,,gestir" á sýninguna.  Í ár var leitað til Sambands garðyrkjubænda um sýnishorn af vinsælum kartöfluafbrigðum á Íslandi og á meðfylgjandi mynd má sjá kunnugleg afbrigði, Rauðar íslenskar, Gullauga og Premier, sem fulltrúa íslenskra kartöflubænda á sýningunni.
 
Bærinn Loppis er u.þ.b. 60 km NV af Helsingfors.  Það er mikið kartöfluhérað og má segja miðstöð ræktunar og sölu á kartöflum í Suður-Finnlandi og jarðvegurinn þar sérlega ákjósanlegur til kartöfluræktar.
 
Á myndunum hér fyrir neðan t.v. er Östen Wahrman, stjórnarmaður í félaginu Pohjola-Norden, sem hefur veg og vanda af kartöfludeginum í Loppis.  T.h. eru hluti áhorfenda á sýningunni í Loppis í ár.
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
.
Til baka
Prentvæn útgáfa


Samband garðyrkjubænda - Bændahöllinni við Hagatorg - 107 Reykjavík- Sími 563 0328, 896 8101- gardyrkja@gardyrkja.is
Hafa samband | Veftré