Landbúnaðarháskóli Íslands vann í fyrra verkefni með það að markmiði að finna kartöfluyrki með hátt þurrefnisinnihald, sem gæfu einsleitar og margar kartöflur undan grasi og hentuðu vel til ræktunar við íslensk skilyrði. Aðaláhersla verkefnisins var að finna fyrir einstaklings-, veitingahúsa- og mötuneytismarkaðinn heppileg kartöfluyrki sem gæfu uppskeru af handhægum kartöflu sem m.a. eru fljótlegar í matreiðslu.
Tilraun var gerð með kartöfluyrki og áburð á Tilraunastöð Lbhí á Korpu og rannsókn á uppskerunni var gerð hjá Matvælarannsóknum Íslands.
SG styrkti verkefnið. Niðurstöðuskýrslur hafa nú borist og birtast þær hér:
Forsoðnar kartöflur, yrki og áburður