
Garðplöntur: Samningur um afmörkuð viðskipti
Garðplöntur: Samningur um opin viðskipti
Garðplöntur: Viðskiptaskilmálar
Aðlögunarsamingur: Umsóknareyðublað
Tillögur, ályktanir og áskorun frá Félagi grænmetisframleiðenda, samþykktar á aðalfundi SG 2006 og afgreiddar á stjórnarfundi SG 27. apríl.
Tillaga 1: um að stjórn SG eyði vinnu í að útbúa nafnalista fyrir félagið, listinn verði settur á heimasíðu Sambandsins og þar verði hægt að skrá maka í félagið.
Heildarlisti ræktenda er til. Hann er einfaldlega upptalning á öllum framleiðendum garðyrkjuafurða sem SG veit um. Nýjar skráningar og breytingar á listanum fari fram í gegnum frkvstj. SG.
Tillaga 2: um að stjórn SG rýmki verklagsreglur vegna kynnisferða garðyrkjubænda í allt að 2-3 heimsóknir á ári á hvern framleiðanda, þó sé aðeins greiddur einn styrkur vegna hverrar ferðar.
Ákveðið að rýmka reglurnar upp í 2 styrki á bú á ári.
Ályktun 1: um að stjórn SG hefji viðræður við ríkisvaldið um breytingar á aðlögunarsamningi, þar sem tryggt verði áframhald samningsins og að fengin verði leiðrétting vegna breytinga í tómataræktun og að reynt verði að koma á föstu einingaverði.
Ályktun 2: um að beina því til stjórnar SG að þjónusta samkv. 5. grein aðlögunarsamningsins verði háð notkun fánarandarinnar en þó verði þeim sem eru með eigin merkingar gefinn eðlilegur aðlögunartími.
Stjórn ákvað að skilyrða styrkveitingar með notkun á fánaröndinni. Frestur ekki ákveðinn að svo stöddu en stefnt að því að 1. janúar 2008 verði allar merkingar með fánaröndinni.
Áskorun: um að SG hrindi af stað fjölmiðlaherferð til kynningar á fánaröndinni, neytendur verði upplýstir um hvað sé íslensk framleiðsla og SG standi vörð gagnvart vafasömum og villandi merkingum.