Garðplöntur: Tilboð

Garðplöntur: Samningur um afmörkuð viðskipti

Garðplöntur: Samningur um opin viðskipti

Garðplöntur: Viðskiptaskilmálar

Aðlögunarsamingur: Umsóknareyðublað

Annað 

04. september 2006 | 00:00
| Samband garðyrkjubænda

Ályktun SG um starfsmenntun í garðyrkju

Sambandið hefur verulegar áhyggjur af stöðu mála í garðyrkjuskólanum og framtíð námsins.  Á stjórnarfundi SG 29. ágúst sl. var svohljóðandi ályktun samþykkt:

Ályktun til rektors og háskólaráðs LBHÍ
samþykkt á stjórnarfundi Sambands garðyrkjubænda 29. ágúst 2006. 

Samband Garðyrkjubænda (SG) hvetur stjórnendur LBHÍ og landbúnaðarráðuneytið til ábyrgrar ákvarðanatöku um framtíð starfsmenntunar í garðyrkju í landinu.  SG hefur af því áhyggjur að yfirvofandi sé að sú staða skapist að nemendur í garðyrkjugreinunum muni hafna starfsmenntun hér á landi vegna óljósrar framtíðar námsins og versnandi aðbúnaðar og leita erlendis til náms.  Virðist SG sem starfsfólk haldist ekki við á Reykjum og að kraftur við uppbyggingu og áhugi á starfsnámi í garðyrkju hafi farið dvínandi meðal stjórnvalda eftir að Garðyrkjuskóli ríkisins á Reykjum var sameinaður Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri um áramótin 2004/2005.  Fordæmi er fyrir því á hinum norðurlöndunum að fáum árum eftir að garðyrkjuskóli þar var sameinaður stærri skóla var garðyrkjumenntun lögð niður, þrátt fyrir að ætlunin hafi verið að byggja upp starfsmenntanám í garðyrkju. 

Ef garðyrkjumenntun flyst alfarið úr landi verður framtíðarþekking á séríslenskum aðstæðum í ræktun í uppnámi.  Ef það er vilji stjórnenda LBHÍ að svo verði ekki, vekur SG athygli á því að mikil þörf er á að aðilar garðyrkjunnar, starfsfólk skólans á Reykjum og nemendur fái án tafar upplýsingar um hver stefna stjórnenda LBHÍ er varðandi starfsstöð skólans og uppbyggingu starfs- og endurmenntunarnáms í garðyrkju.  Hér með er skorað á háskólaráð og landbúnaðarráðuneytið að skoða stöðu garðyrkjumenntunarinnar af alvöru og byggja upp grunnmenntun í garðyrkju svo að sómi verði að. 

Samband garðyrkjubænda óskar eftir viðbrögðum um stefnu LBHÍ í málinu. 

F. h. Sambands garðyrkjubænda,
Helga Hauksdóttir, frkvstj.

Til baka
Prentvæn útgáfa


Samband garðyrkjubænda - Bændahöllinni við Hagatorg - 107 Reykjavík - Sími 563 0328, 896 8101 - gardyrkja@gardyrkja.is
Hafa samband | Veftré