08. maí 2007 | 08:01
Aðalfundur Sambands garðyrkjubænda 2007 samþykkti svohljóðandi ályktun til landbúnaðarráðherra og rektors Landbúnaðarháskólans:
,,Aðalfundur SG haldinn á Hótel Örk 13. apríl 2007 skorar á landbúnaðarráðherra og rektor Lbhí að kveða upp úr um það að starfsmenntun garðyrkju skuli áfram vera á Reykjum í Ölfusi”.
Samband garðyrkjubænda lagði í greinargerð með ályktuninni áherslu á ályktunina. Skólanum á Reykjum hefur verið haldið í óvissu á þriðja ár varðandi framtíð starfsmenntanámsins og hefur það leitt til atgervisflótta frá stofnuninni sem ekki sér fyrir endann á, meðan ráðamenn eru ekki samhljóma í yfirlýsingum sínum.
Sú staðreynd að landbúnaðarráðherra hefur ítrekað lýst því yfir að starfsmenntanám í garðyrkju verði byggt upp á Reykjum en rektor Landbúnaðarháskóla Íslands hefur ítrekað sagst þurfa tíma til að taka ákvörðun um hvar framtíð starfsmenntunarinnar í garðyrkju skuli vera gefur Sambandinu tilefni til að hafa áhyggjur af stöðu mála.
Óskað er eftir að ráðamenn taki sameiginlega ákvörðun í málinu og komi henni á framfæri við Samband garðyrkjubænda og aðra sem hlut eiga að máli.