Garðplöntur: Tilboð

Garðplöntur: Samningur um afmörkuð viðskipti

Garðplöntur: Samningur um opin viðskipti

Garðplöntur: Viðskiptaskilmálar

Aðlögunarsamingur: Umsóknareyðublað

Aðlögunarsamningur: Viðmiðunarreglur um kröfur til styrkumsókna

Viðmiðunarreglur Sambands garðyrkjubænda um kröfur til styrkumsókna vegna 5. gr. aðlögunarsamningsins hljóða svo:

Reglurnar hafa verið samþykktar af Fagráði garðyrkjunnar og Garðyrkjumiðstöð.

Styrkumsóknir þurfa að berast SG skriflega og áður en farið er af stað með viðkomandi verkefni.

 

Grundvöllur aðlögunarsamningsins er að efla beri ræktun á íslensku grænmeti og kartöflum.  Þess vegna eru eingöngu veittir styrkir vegna íslenskrar framleiðslu.  Það þarf því að koma skýrt fram við sölu og framsetningu vörunnar að um íslenskt ræktað grænmeti sé að ræða.  Samband garðyrkjubænda hefur látið sérhanna svokallaða fánarönd til þessara merkinga og setur sem skilyrði fyrir styrkveitingum að hún sé notuð.  Sýnishorn af umbúðum skal fylgja öllum umsóknum.

KYNNINGAR – Umsókn berist a.m.k. 3 mánuðum fyrir kynningu. 

Styrkumsóknir eru metnar á grundvelli áætlunar kynningaraðila.  Ætlast er til að umsækjandi leggi sjálfur fram a.m.k. krónu á móti krónu í hvert verkefni.  Ekki eru styrktar beinar auglýsingar eða heimasíðugerð fyrir einn aðila.  Skilyrði fyrir að auglýsingastyrkur sé veittur er að auglýsingin sé í nafni íslenskrar grænmetisframleiðslu í heild og/eða í framhaldi af viðurkenndri vöruþróun.  Einnig að fánarönd SG sé notuð.

 

Með umsókn fylgi eftirfarandi upplýsingar:

  1. Framkvæmd.  Hvar á að kynna/auglýsa, hvenær og hvernig.
  2. Markhópur.
  3. Kostnaðaráætlun og eigið framlag.
  4. Niðurstöður.  Innan 3 mánaða frá því að kynningin/auglýsingaátakið fór fram skili fyrirtækið til SG mati á því hverju átakið/kynningin skilaði fyrir fyrirtækið og/eða íslenska garðyrkju í heild.  Hvernig verður það gert?

Eins og segir til um í aðlögunarsamningnum, 5. gr. 2 leitar Samband garðyrkjubænda eftir tillögum Fagráðs garðyrkjunnar og Garðyrkjumiðstöðvarinnar um ráðstöfun fjárveitinga til verkefna.

 

 

RANNSÓKNIR – Umsóknarfrestur 1. nóvember fyrir næsta ár á eftir

Með umsókn fylgi eftirfarandi upplýsingar:

  1. Lýsing á núverandi starfsemi fyrirtækisins.
  2. Hver er tilgangur annsóknarinnar/tilraunarinnar.  Hver er þörfin.  Það þarf að vera hægt að sjá að verkefnið nýtist íslenskum grænmetisframleiðendum.
  3. Hvernig á að vinna verkið.  Hver á að vinna það.
  4. Tímasetningar.  Upphaf – endir.
  5. Krafa um niðurstöður/áfanganiðurstöður.  Skýrsla. Hvar, hvenær og hvernig munu niðurstöður tilraunarinnar verða kynntar/birtar.
  6. Kostnaðaráætlun og eigið framlag.  Í kostnaðaráætlun komi einungis fram sú vinna sem unnin er fyrir viðkomandi verkefni
  7. Framkvæmdaraðili tilnefnir úttektaraðila sem SG samþykkir.  Gera þarf ráð fyrir að SG geti haft eftirlit með framkvæmdinni.

 

ÞRÓUN – Umsóknarfrestir eru til 1. nóvember og 1. maí.

Meginreglan er sú að fyrirtækjum sé hjálpað að þróa vörur (aðkeypt vinna), en vélakaup einstakra fyrirtækja eiga að standa undir sér sjálf).  Um styrki þarf að sækja fyrirfram, þ.e. áður en vöruþróunin hefst.  Ætlast er til að umsóknaraðilinn leggi fram a.m.k. 1 kr á móti 1 kr í hvert verkefni.

Skilyrði fyrir styrkveitingu er að við markaðssetningu verði hin nýja vara merkt með fánarönd SG.

 

Með umsókn fylgi eftirfarandi upplýsingar:

  1. Lýsing á núverandi starfsemi fyrirtækisins.
  2. Hvaða vöru á að þróa.
  3. Skilgreining á því hver þörf markaðarins er fyrir vöruna.  Hvað er búið að gera til að athuga þörfina.
  4. Varan þarf að vera nýjung (hafa nýsköpunargildi) á þeim markaði sem fyrir er eða stækka núverandi markað.
  5. Ef sótt er um til að þróa fleiri en eina vöru þarf að forgangsraða verkefnunum.
  6. Markhópur.
  7. Tímarammi.  Hvenær er áætlað að vöruþróunin hefjist.  Setja þarf upp vörður sem tilgreini við hvaða áfanga verkefnisins á að endurmeta þróunarvinnuna.  Meta þarf hvort reynslan á ákv. tímapunkti (við tilteknar vörður) er nógu góð til að rétt sé að halda þróuninni áfram.
  8. Kostnaðaráætlun.  Heildarkostnaður.  Gera þarf ráð fyrir markaðssetningu frá upphafi og halda öllum kostnaði saman.  SG hafi aðgang að ársreikningum fyrirtækis sem hyggst hefja þróunarverkefni.
  9. Áföngum þarf að ljúka áður en greiðsla berst.  SG hafi möguleika á að fygjast með þróunarvinnunni á öllum stigum.
  10. Niðurstöður.  Innan árs frá því að varan kemur á markað skal skila til SG mati frumkvöðuls á því hvaða árangri þróunarvinnan skilaði fyrirtækinu og íslenskri garðyrkju í heild á fyrsta árinu.  Hvernig gekk varan á markaði?

 

ENDURMENNTUN

Erlendir ráðunautar – Sótt sé um fyrir 1. nóvember fyrir næsta ár á eftir.  Styrkir vegna ráðunautaheimsókna nema útlögðum kostnaði og launakostnaði viðkomandi sérfræðings.

Með umsóknum fylgi eftirfarandi upplýsingar:

  1. Tilgangur heimsóknarinnar.
  2. Tími.  Hvenær er heimsóknin áætluð, hver kemur og hversu lengi.

Kynnisferðir bænda – Umsókn berist fyrir áætlaðan brottfarartíma.  Styrkir til kynnisferða geta numið allt að kr. 150.000.- á hverja garðyrkjustöð á ári.  Ætlast er til að kynnisferðir séu fyrst og fremst skipulagðar af faghópum og/eða ráðunautum. 

 

Með umsókn fylgi eftirfarandi upplýsingar:

  1. Markmið ferðarinnar.
  2. Hvaða bændur fara.
  3. Hvers má vænta sem árangurs ferðarinnar.
  4. Dagskrá ferðarinnar.

Greiðsla er háð því að skilað sé skýrslu um ferðina og árangur hennar, sem SG samþykkir.

 

Stjórn SG getur kallað eftir gögnum frá umsækjendum um þá liði í umsóknum sem stjórnin telur ekki nægilega vel skýrð eða studd fullnægjandi gögnum.  Ef fullnægjandi gögn fást ekki með umsókn getur verið óhjákvæmilegt að vísa viðkomandi umsókn frá.

 

GREIÐSLUR fara fram eftir að verkefni eða áfanga verkefnis lýkur og niðurstöður hafa verið samþykktar af Sambandi garðyrkjubænda.

Þessar reglur verði birtar á vefsíðu Sambands garðyrkjubænda og í auglýsingum um styrkumsóknir vísað í þær.

Til baka

Annað 


Samband garðyrkjubænda - Bændahöllinni við Hagatorg - 107 Reykjavík - Sími 563 0328, 896 8101 - gardyrkja@gardyrkja.is
Hafa samband | Veftré