Reglur um fánarönd Sambands garðyrkjubænda
 
Garðyrkjubændur eiga sameiginlegt vörumerki sem er fánarönd Sambands garðyrkjubænda. Stefnt er að því að allar íslenskar garðyrkjuafurðir beri þetta merki. Tilgangurinn er að neytendur geti auðveldlega þekkt íslenskt ræktaða vöru og aðgreint hana frá innflutningi. Með því að öll aðildarfélög SG nýti sér þetta sameiginlega merki styrkja þau íslensku framleiðsluna, hvert annað og sjálf sig um leið. 
 
Grænmetisbændur hafa nýtt sér fánaröndina síðustu árin með góðum árangri og hafa nú kartöflu-, blóma- og garðplöntubændur ákveðið að merkja einnig sína framleiðslu með röndinni. Að undanförnu hefur Sambandið lagt í töluverðan kostnað við að semja reglur og leiðbeiningar um notkun fánarandarinnar. Hafa reglurnar nú verið sendar öllum garðyrkjubændum í landinu. Þeir bændur sem vilja nota röndina fá til þess skriflegt leyfi endurgjaldslaust og þurfa að skrifa undir samkomulag um notkunina.
 
SG vill undirstrika þau verðmæti og þau tækifæri sem þetta sameiginlega merki felur í sér. Þegar allir/flestir ræktendur hafa tileinkað sér notkun á þessu sameiginlega merki er ætlunin að fræða neytendur enn frekar um röndina og benda á hvernig auðvelt er að finna íslenskt ræktuðu vöruna á sölustöðum á fljótlegan hátt. Með þessu verður sem sé einfaldara og öruggara fyrir neytendur að þekkja íslensku framleiðsluna frá innflutningi.
 
Hér má finna reglur og leiðbeiningar um notkun fánarandarinnar.
 
 
 
Tilgangurinn með þessu skrifræði öllu er að tryggja að gildi randarinnar verði ekki rýrt með rangri eða gáleysislegri notkun.  Það er mjög mikilvægt að bændur og dreifingaraðilar standi vörð um rétta notkun á röndinni, svo að henni megi áfram treysta sem tákni fyrri íslenskt ræktaða gæðavöru.
Til baka


Garðplöntur: Tilboð

Garðplöntur: Samningur um afmörkuð viðskipti

Garðplöntur: Samningur um opin viðskipti

Garðplöntur: Viðskiptaskilmálar

Aðlögunarsamingur: Umsóknareyðublað

Annað 


Samband garðyrkjubænda - Bændahöllinni við Hagatorg - 107 Reykjavík - Sími 563 0328, 896 8101 - gardyrkja@gardyrkja.is
Hafa samband | Veftré