18. desember 2009 | 13:44
| Úr fundargerðum

3. stjórnarfundur SG 2009

3. stjórnarfundur SG 2009, 16. apríl kl 13:00 í Bændahöllinni

Fundur hófst kl. 13:00. Mættir: Þórhallur, Friðrik, Vernharður, Bergvin og Sveinn auk framkvæmdastjóra sem ritar fundagerð.

1. Fundagerð síðasta fundar. Formaður las fundagerð síðasta fundar og var ein athugasemd gerð við hana, henni breytt og hún samþykkt eftir breytingu.

2. Aðlögunarsamningur.
Styrkumsóknir:
a. Flúðasveppir: Umsókn um styrk fyrir tvo starfsmenn vegna námssferðar til Hollands. Ferð farinn 17/3-22/3. AFGREIÐSLA: Samþykkt að veita ferðastyrk að upphæð 105.000 kr. á mann samkvæmt reglum.

Reglur um styrki: Breyta þarf reglugerð um styrkveitingar á þann hátt að styrkur fellur niður eftir 3 ár ef hann er ekki sóttur. Dæmi er um kartöflustyrk til Landbúnaðarháskólans sem veittur var 2004 og var verið að ganga frá málinu nú í byrjun árs 2009. AFGREIÐSLA: Samþykkt að greiða styrk ef hann uppfyllir skilyrði. Framkvæmdastjóri leggi fram tillögu til breytinga á næsta stjórnarfundi.

3. Reikningar SG 2008: Stjórnarmenn hafa farið yfir reikningana yfir páskana. Theodór Sigurðsson endurskoðandi SG kom á fundinn og skýrði út og svaraði spurningum.

4. Tillaga að samningi við ríkisvaldið um aðlögunarsamning: Formaður kynnti drög að samkomulagi við ríkið um breytingar á aðlögunarsamning. Hagræðingarkrafa sem var í eldri samningi er ekki með í tillögunni. Um er að ræða ákveðnar prósentuhækkanir. Helsta hættan er að verðbólguþróun vinni neikvætt á beingreiðslum.
Samþykkt að kynna tillöguna fyrir aðalfund grænmetisbænda sem haldinn verður síðar í dag.

5. Rafmagnsmálin: Viðhorf fólks er með okkur. Stjórnamálamenn styðja okkur en málið er alfarið í höndum landbúnaðarráðherra. Embættismenn í ráðuneytum hafa verið settir í málið og stjórnin telur það ekki góða þróun. Samþykkt að fela framkvæmdastjóra að koma málefnum SG á framfæri og ná fram markmiðum garðyrkjubænda að rafmagnsverð hækki ekki.

6. Búnaðarsjóðsgjöld: Fyrir liggur tillaga til umræðu frá Búnaðarþingi Bændasamtakanna um búnaðarsjóðsgjald. Samkvæmt dómi Mannréttindadómstólsins getur verið óheimilt að innheimta þau á þann hátt sem gert er. Einnig er til lögfræðiálit sem gengur í sömu átt og þó sérstaklega er snýr að búgreinasamböndum. Eftirfarandi tillaga var samþykkt sem senda á stjórn BÍ:

Stjórn SG er sammála um að núverandi kerfi, þ.e að innheimt sé gjald í gegnum skattinn og er hlutfall veltu, vera mjög gott. Skilgreina þarf hlutverk búnaðarsamtaka, bændasamtaka og búnaðarfélaga m.v. þjónustu sem þau veita. Stjórnin sér þó ákveðna galla við fyrirkomulagið ef það stangast á við mannréttindi. Sameiginlegir hagsmunir félagsmanna í búgreinasamtökum eru margir og gagnast öllum. Stjórnin telur þó að setja verður hámark eða þak á greiðslur þar sem erfitt er að þjónusta stærri fyrirtæki í hlutfalli við háar greiðslur þeirra. Gegnsæi þarf að vera við notkun fjármagnsins og skilgreint hvernig það er notað.

7. Aðalfundur SG 17. apríl: Minnt er á kjósa þarf fulltrúa SG á búnaðarþing. Gústaf Sæland hefur samþykkt að taka að sér fundastjórn.

8. Kynning á garðyrkjunni – stjórn Samorku:
Kynning verður á garðyrkjunni fimmtudaginn 4. júní fyrir stjórn Samorku en hún mun funda á Flúðum og verður farið þaðan um kl. 13:00 í kynningu á garðyrkjstöðum. Framkvæmdastjóra falið að útfæra nánar hvaða stöðvar á að heimsækja. Reyna að fá Magnús Ágústsson til þess að vera með.

9. Önnur mál:
a. Umsögn um þingsályktunartillögu: Framkvæmdastjóri sendi 19. mars umsögn um tillögu til þingsálykunar um framleiðslu á köfnunarefnisáburði. SG lýsir sig fylgjandi að könnun fari fram.
b. Upplýsingar sendar þingmönnum: Vegna mikillar umræðu í þjóðfélaginu um stöðu garðyrkjunnar og nú síðast á Alþingi sendi framkvæmdatjóri öllum þingmönnum samantekt um stöðu garðyrkjunnar og sérstaklega um raforkumálin. Nokkrir þingmenn hafa svarað og þakkað fyrir.
c. Garðyrkjuskólinn að Reykjum 70 ára – afmælisgjöf SG: Tillaga frá Guðríði, staðarhaldara, um hljóðkerfi með míkrófóni en kostnaður er um 70.000 kr. Einnig upplýsti hún um að stæði til að setja nýtt þak á garðskála en það er 1000 m2. Málið rætt og samþykkt að hljóðkerfið væri góður kostur. Formaður ætlar að skoða annan möguleika og kynna síðar.
d. Kynning á verkefnum nemenda Tækniskólans í lýsingartækni. SG standi fyrir kynningu í samráði við Tækniskólann á verkefnum nemenda. Áætlað að hún verði 22/4 í Bændahöllinni. Kostnaður er enginn nema í formi kaffi. Samþykkt
e. Tillaga að haustfundi SG: Framkvæmdastjóri leggur til að haustfundur verði haldinn föstudaginn 13. nóvember á Hótel Sögu. Kanna möguleika að bæta við kynningum fyrirtækja tengdum garðyrkju á haustfundi. Einnig að kanna áhuga á sameiginlegan málsverð eftir fundinn. Stjórn samþykkt að vinna eftir tillögunni.
f. Tillaga að næstu stjórnarfundum:
Miðvikudagurinn 3. júni – þriðjudagurinn 11. ágúst – fimmtudagurinn 24. september – fimmtudagurinn 5. nóvember – föstudagurinn 11. desember
Tillagan samþykkt.


Friðrik vék af fundi 15:10.
Fundi slitið kl. 16:30
Bjarni Jónsson

Til baka
Prentvæn útgáfa


Samband garðyrkjubænda - Bændahöllinni við Hagatorg - 107 Reykjavík - Sími 563 0328, 896 8101 - gardyrkja@gardyrkja.is
Hafa samband | Veftré