
4. stjórnarfundur SG 2009, 5. júní kl 13:00 í Bændahöllinni
Fundur hófst kl. 13:00. Mættir: Þórhallur, Friðrik, Bergvin og Sveinn auk framkvæmdastjóra sem ritar fundagerð. Vernharður hafði boðað forföll og einnig varamaður hans.
1. Fundagerð síðasta fundar. Formaður las fundagerð síðasta fundar. Nokkrar athugasemdir voru gerðar og verða lagaðar fyrir undirritun stjórnar á næsta fundi hennar.
2. Aðlögunarsamningur.
Styrkumsóknir:
a. Garðyrkjustöðin Engi: Vöruþróun nýrrar framleiðslu á austurlensku grænmeti. Tilraun er gerð í samstarfi við markaðsaðila. Heildarkostnaður er áætlaður 6.042.000 kr. Óskað eftir 50% eða 2.541 milljón króna. AFGREIÐSLA: Umsókn samþykkt með tveimur athugasemdum. Að áætlað tekjutap verði lækkað um 1,2 milljónir og verði heildarkostnaður því 4.842 m og styrkur því 50% af því eða 2.421 m. Við skoðun á áætluðu tekjutapi er að líkindum ekki tekið tillit til lækkunar á kostnaði á móti. Hin athugasemdin er að Engi útvegi viðurkenndan úttektarmann sem sendi stjórn SG skýrslu um stöðu verkefnisins. Tímasetning úttektar verði gerð í samráði við Engi. Styrkur verður greiddur við móttöku skýrslu.
b. Sölufélag garðyrkjumanna: Umsókn um markaðsstyrk f/2009. Samtals er gert ráð fyrir að SFG noti 22.740.000 kr í markaðsmál. AFGREIÐSLA: Samþykkt að veita SFG stuðning til markaðsmála allt að 5 milljónir að uppfylltum hefðbundum skilyrðum.
c. Sölufélag garðyrkjumanna: Umsókn um vöruþróun f/2009. Um er að ræða tvö verkefni og að kostnaður verði samtals 19 milljónir. AFGREIÐSLA: Framkvæmdastjóra falið að ræða við SFG. Skoða sérstaklega kostnað við umbúðaþróun. Óska eftir nánari útlistun á grænmetissafa verkefninu. Óskað verði eftir úttektum og skýrslum um framgöngu verksins. Endanlegri ákvörðun frestað til næsta fundi.
Við afgreiðslu á liðum b og c vék Þórhallur af fundi vegna tengsla við umsækjanda. Friðrik hafði yfirgefið fundinn.
Tillaga að breytingu á verklagsreglum um úthlutun styrkja úr aðlögunarsjóði: Tillagan gerir ráð fyrir að sett séu mörk um að hafi styrkur ekki verið sóttur innan tveggja ára falli hann niður. Sjá meðfylgjandi tillögu. Samþykkt
3. Rafmagnsmálin: Formaður og framkvæmdastjóri áttu fund með nýjum landbúnaðarráðherra 27. maí. Rafmagnsmálin voru kynnt og rætt um þá stöðu sem upp er komin. Ráðherra var jávæður og vildi skoða málið. Farið var fram á það við ráðherra að beingreiðslur yrðu áfram 95% þar til niðurstaða næðist í málinu. Óskað var eftir því að upplýsingar um stöðu skógarplöntuframleiðenda og hvort einhverjar aðgerðir væru framundan en fyrirsjáanlegt er að skerðing á framleiðslu þeirra verður um 40-50% á árinu 2010.
Formaður og framkvæmdastjóri fóru á fund iðnaðarnefndar Alþingis þann 3. júní. Fundurinn var mjög upplýsandi og verulegur stuðningur við málefni garðyrkjunnar.
Minnisblað lögmannsstofunnar LEX um rafmagnsmálin lagt fram.
Bréf frá ráðuneytinu um jöfnun á kostnaði dreifbýli – þéttbýli lagt fram. Vegna minnkunar á rafmagnsnotkun fyrstu 4 mánuði ársins er hægt að veita fjármagni í þetta.
Netpóstur framkvæmdastjóra dags. 4. júní til Jóhanns Guðmundssonar , aðstoðarmanns landbúnaðarráðherra, lagður fram. Þar er ítrekuð ósk SG frá fundi með ráðherra.
Samþykkt að leita leiða til þess að ná málum fram með viðræðum við landbúnaðar- og iðnaðarráðherra áður en farnar verða aðrar leiðir.
Tillaga um að skipuð verði nefnd um rafmagnsmál garðyrkjunnar. Lagt til að eftirtaldir verði i nefndinni: Þórhallur Bjarnason, Knútur Ármann, Gunnar Þorgeirsson, Gunnlaugur Karlsson, Magnús Ágústsson og Bjarni Jónsson. Megin verkefni hennar er að leiða starf í rafmagnsmálum auk þess að vera stjórn SG til halds og trausts. Að auki að taka á málum sem snerta hagsmuni garðyrkjunnar í rafmangsmálum. Upplýst var að samningar um rafmagnskaup renna út árið 2010 og skal nefndin vinna að því að ná hagstæðum samningum. Núverandi samningar eru á einstaklingsgrundvelli þó SG var framarlega í vinnu að hagkvæmari samningum. Tillagan samþykkt. Boða skal nefndina saman sem fyrst.
4. Fánaröndin: Bréf sent Árnason Faktor vegna umbúða sem fyritækið Matfugl notar undir kjúklingabringur. Á umbúðunum er fánarönd sem er keimlík fánarönd SG. Viðbótar gögn hafa verið send m.a. reglur um notkun osfrv. Sambærilegt bréf vegna umbúða var einnig sent 5/6 vegna umbúða Bónus utanum franskar kartöflur. Sjá meðfylgjandi bréf.
Stjórn samþykkti að sækja málið hart þar sem um mikið hagsmunamál er að ræða fyrir SG og verja þarf þá hagsmuni með öllum ráðum.
5. Rekstur SG fyrstu 5 mánuði ársins: Yfirlit yfir tekjur og gjöld ásamt samanburði við árið 2008. Tapið er um 1 milljón eða svipað og var á sama tíma á síðasta ári. Stjórnin óskaði eftir að framkvæmdastjóri héldi fast í budduna.
6. Sjóðir SG í vörslu Kaupþings: Samkvæmt samþykkt síðasta stjórnarfundar átti framkvæmdastjóri fund með sjóðsstjóra Kaupþings. Hann var í framhaldi beðinn um að gefa yfirlit yfir þróunina frá 1. janúar 2008. Meðfylgjandi er yfirlit hans ásamt stöðu sjóða í eigu SG. Samkvæmt upplýsingum hans er ávöxtun safnsins, frá 1. janúar 2008 til dagsins í dag, neikvæð um 4,35%. Tap SG er um 6 milljónir og enn eru einhverjir fjármunir enn í hættu en ekki er búið að gera upp þá sjóði.
Sjóðsstjóri álýtur að áhættudreifing nú er mun meiri áður. Safnið er blanda innlána og ríkisskuldabréfa sem er það öruggasta í dag.
7. Markaðsmál:
Matreiðsluþættir m/Bændasamtökunum: Tjörvi Bjarnason frá BÍ kynnti málið. Um er að ræða þáttagerð á matreiðsluþáttum og eru öll búgreinasambönd Bændasamtakanna þátttakendur. Áætlað er að framleiða 20 þætti. Grænmeti og blóm verða í þáttunum og óskað var eftir því að reynt verði að koma garðplöntum fyrir á áberandi hátt. Einnig lögðu stjórnarmenn áherslu á að koma skilaboðum um hlutverk fánarandarinnar til áhorfenda. AFGREIÐSLA: Stjórn SG samþykkir að taka þátt í gerð sjónvarpsþátta með öðrum búgreinarfélögum Bændasamtakanna sbr. meðfylgjandi kynningarbréf. Kostnaður SG verður 400.000 kr.
Orri og Sverrir borða heima: Lagt fram bréf með ósk um fjárhagsstuðning við gerð sjónvarpsþátta. Félagarnir Orri og Sverrir komu á fundinn og kynntu málið. Ætlunin er að framleiddir verði 6 þættir. Óskað er eftir 5-600.000 kr. fjárframlagi SG en heildarkostnaður er áætlaður 4-4,5 milljónir. AFGEIÐSLA: Beiðni hafnað.
8. Búnaðarsjóðsgjöld:
a. Yfirkjörstjórn Bændasamtakanna hafnar fulltrúa SG á Búnaðarþing: Meðfylgjandi er bréf yfirkjörstjórnar þar sem tilkynnt er að einn af varamönnum SG á Búnaðarþing er hafnað þar sem hann er ekki gjaldgengur þar sem hann hefur ekki greitt búnaðargjald. Kanna hvort grundvöllur er fyrir því að stjórn SG skipi varamann þar sem um kosningu til Búnaðarþings á aðalfundi SG er að ræða. Framkvæmdastjóra er falið að vinna að lausn málsins með BÍ.
b. Vanhöld á greiðslu búnaðargjalda: Nokkrir garðplöntuframleiðendur hafa ekki greitt búnaðargjald og jafnvel um trúnaðarmenn aðildarfélagsins að ræða. Málið er litið alvarlegum augum. AFGREIÐSLA: Samþykkt að framkvæmdastjóra verði falið, í samráði við BÍ, að fá fullkomna skrá um vanhöld í málinu áður en ákveðið er með aðrar aðgerðir..
9. Evrópusambandið: Stjórnarmenn fengu bókina ”Inni eða úti? – Aðildarviðræður við Evrópusambandið” eftir Auðunn Arnórsson. ESB mál ekki rædd frekar.
10. Kynning á garðyrkjunni: Framkvæmdastjóra falið að vinna að kynningu fyrir landbúnaðarráðherra auk landbúnaðarnefndar með ferð í garðyrkjustöðvar. Einnig skal bjóða iðnaðarráðherra og iðnaðarnefnd. Stefna að ferð í byrjun september. Kanna einnig þátttöku annara s.s. starfsfólki ráðuneyta og Bændasamtakanna. Leggja skal fram tilllögu til stjórnar.
11. Eftrifylgni mála:
a. Samorka. Þórhallur og Bjarni hittu stjórn Samorku á Flúðum 4. júní og kynntu þeim garðyrkjuna með heimsóknum í fyrirtæki. Gagnleg skoðanaskipti fóru fram.
b. Garðyrkjuskólinn: Formaður afhenti skólanum forlátt hljóðkerfi á degi skólans á sumardaginn fyrsta.
12. Önnur mál:
a. Launamál framkvæmdastjóra: Samkvæmt samningi við framkvæmdastjóra þá átti að endurskoða launalið m.v. 1. maí. Tillaga er frá framkvæmdastjóra að endurskoðun verði frestað til 1. mars 2010. Ástæðan er slæm rekstrarniðurstaða SG 2008 og ástandið í þjóðfélaginu. Samþykkt
b. Samkeppnismál. Áfrýjunarnefnd Samkeppnisstofnunar staðfestir að BÍ hafi brotið gegn samkeppnislögum þar sem hvatt var til samráðs í verðhækkunum.
c. Tillaga að haustfundi SG: Framkvæmdastjóri leggur til að haustfundur verði haldinn föstudaginn 13. nóvember á Hótel Sögu. Yfirlit um kostnað lagt fram til kynningar. Kanna möguleikan að bæta við kynningum fyrirtækja tengdum garðyrkju á haustfundi. Einnig að kanna áhuga á sameiginlegum málsverð eftir fundinn. Stjórn samþykkir að vinna eftir tillögunni.
d. Tillaga að næsta stjórnarfundi: Þriðjudagurinn 11. ágúst. Stjórnamenn beðnir um að kanna hvort dagssetning henti.
Friðrik vék af fundi 15:30.
Fundi slitið kl. 17:00
Bjarni Jónsson