23. desember 2009 | 09:54
| Úr fundargerðum

5. stjórnarfundur SG 2009

5. stjórnarfundur SG 2009, 13. ágúst kl 13:00 í Bændahöllinni

Fundur hófst kl. 13:20. Mættir: Þórhallur, Friðrik, Vernharður, Bergvin og Sveinn auk framkvæmdastjóra sem ritar fundagerð.

1. Fundagerð síðasta fundar. Formaður las fundagerð síðasta fundar og og voru gerðar á henni smávægilegar breytingar og síðan samþykkt.

2. Aðlögunarsamningur.
Styrkumsóknir:
a. Sölufélag garðyrkjumanna: Umsókn um vöruþróun f/2009. Lagt til að fulltrúar SFG komi á næsta stjórnarfund til kynningar á verkefnunum og leggi fram endurskoðaðar kostnaðaráætlanir. Samþykkt.

3. Fjárhagur SG: Lagt fram minnisblað um tillögur til lausnar og sparnaðarleiðir. Bréf til BÍ vegna málsins lagt fram. Einnig lagt fram skjal með samanburði tekna og skerðing sem er á búnaðargjöldum. Skerðingin verður 17,6% í grænmeti, garðplöntu og blómageiranum og 39,6%% minnkun gjald í kartöflum.  Heildartekjur minnka um 22,1% eða um 4,2 milljónir króna á ári. Formlega hefur verið óskað eftir því að Bændasamtökin rannsaki ástæður þessara lækkunar tekna. Erindið verður tekið fyrir á stjórnarfundi í næstu viku. UMRÆÐA OG ÁKVARÐANIR: Er möguleiki að hluti skýringarinnar sé að leyta í skilgreiningu á ISAT? Stjórnarmenn ræddu um að lækka þóknanir fyrir setu á stjórnarfundum úr 12.000 í 6.000. Hætt verður að veita markaðsstyrki. Laun formanns verða lækkuð um 15%. Kostnaður v/Nordisk möte verði lækkaður. Funda- og viðskiptakostnaður verði lækkaður eins og tök er á. Fjölga ákvörðunum stjórnar í gegnum netið/tölvu í minniháttarmálum til þess að fækka fundum. Slípa verklag stjórnarinnar til þess að auka skilvirkni.
a. Vanhöld á greiðslu búnaðargjalda: Samkvæmt meðfylgjandi bréfi frá BÍ kemur fram að Ríkisskattstjóri hefur sent nokkrum garðplöntuframleiðendum sem ekki hafa greitt gjöld til SG en hafa verið taldir fullgildir félagsmenn. M.a. er um trúnaðarmann í garðplöntufélaginu. Engin svör hafa borist.
b. Búnaðargjald: Formaðurinn hefur verið tilnefndur í nefnd BÍ um skoðun á búnaðargjöld.

4. Aðildarviðræður að Evrópusambandinu: Lagt fram minnisblað framkv st. Sem sat upplýsingafund í landbúnaðarráðuneytinu. SG verður að leggja fram þau markmið sem þau telja mikilvæg fyrir garðyrkjuna og koma á framfæri við BÍ og utanríkisráðuneytið. UMRÆÐUR: Mikilvægt er að vera vel undirbúnir undir aðildarviðræður. SG verður að vera með kröfur sínar á hreinu og koma þeim á framfæri við stjórn BÍ. Afla þarf upplýsinga frá stjórn BÍ um áherslur þeirra í aðildarviðræðum. Óska eftir nánari upplýsingum og óska eftir því að vera meir inní umræðunni. Kanna hvort hægt sé að greina stöðu garðyrkjunnar þannig að vitað sé hver staða hennar sé og hagsmunamat liggi fyrir.

5. Uppskerubrestur á kartöflum vegna frosta: Ármann Ólafsson og Bjarki Ármannsson úr Þykkvabæ kom á fundinn og lýsti stöðu mála en frost í tvær nætur í sumar hefur valdið gríðarlegu tjóni. Lögð fram skýrlsa Magnúsar Ágústssonar um vettvangsferð. Búnaðarsamband Suðurlands er að mæla upp garða svo hægt verði að safna smaan gögnum um stærð þeirra, skemmdir og síðan magn og kostnaðartap bænda. Úr Þykkvabæ kemur um 70-75% af framleiðslu af kartöflum á landinu. Óttast er að allt að helmigur uppskerunnar sé ónýtur. Talið er að í Bjargráðasjóði (A hluti) séu um 9 milljónir sem er aðeins brot af þeim skaða sem ljóst er að verður. Óska eftir fundi með landbúnaðarráðherra til þess að ræða þessa stöðu.
AFGREIÐSLA: Ljúka gagnaöflun. Senda Bjargráðasjóði erindi. Óska eftir samtali við landbúnaðarráðherra. Senda Viðlagasjóði erindi. Leita allra leiða sem mögulegt er að fá skaðan bættan.

6. Málefni garðyrkjustöðvarinnar NN: Meðfylgjandi gögn: 1. Ósk NN um að SG standi að málshöfðun. 2. Minnisblað BJ 300609. 3. Skýrsla MÁÁ 130809 um ágreiningsmál.

Suðurlandsskógar riftu samningi við NN vegna gæðamála. Í bréfi frá NN, dagssett 28. júlí, er rætt um málshöfðun og að SG standi að henni fyrir hönd þeirra á grundvelli þess að um réttlætismála sé að ræða fyrir allra framleiðendur.
Framkv st. hefur veitt þeim aðstoð á fyrstu stigum máls m.a. með þátttöku á sáttafundi. MAÁ hefur verið ráðgefandi. Í verksamningi framleiðenda og kaupenda er kveðið á um ákveðið eftirlit kaupanda en því síðan hafnað að einhver ábyrgð sé af hálfu kaupanda. Flestar prófanir á gæðum hafa verið í lagi fram að afhendingu. Kaupandi setur þó útá ákveðin gæði en tekur á móti plöntum. Skaði kemur fram eftir afhendingu en þá er ábyrgð framleiðenda lokið. Ekki er hægt að segja hvað gerist frá þeim tíma sem afhent er þar til plantað er út.
MAÁ færir rök fyrir því hvers vegna hann telur að SG eigi að standa að málshöfðun.
AFGREIÐSLA: Ákvörðun frestað. Framkvæmdastjóra falið að hafa samband við aðila og afla nánari upplýsinga m.a. frá öðrum framleiðendum skógarplantna. Einnig að ræða við lögfræðing félagsins.

7. Aðild að Erfðalindasetri: Bréf frá Margréti G. Ásbjarnardóttur, LBhÍ. AFGREIÐSLA: Samþykkt að gerast samstarfsaðili að setrinu.

8. Skýrsla Daða Más um rafmagnsverð: Lögð frma til nánari skoðunar

9. Umsókn um styrk v/viðburðar helguðum kartöflum: Ósk frá nemendum í vöruhönnun vegna verkefnis fyrir Menningarnótt í Reykjavík. Styrkbeiðni er 400.000 kr. AFGRIÐSLA: Umsókn hafnað.

10. Eftrifylgni mála:
a. Kynning þingmanna á garðyrkjunni. Undirbúningur ekki hafinn þar sem þing stendur enn yfir. Undirbúa í samráði v/Gunnlaug Karlsson.
b. Fánaröndin: Búið að ganga frá samningi við Þykkvabæjarkartöflur. Kanna þarf betur hvort þarf sambærilegan samning og við aðrar afurðarstöðvar. Búast má við málshöfðun á hendur Matfugli m.v. viðbrögð þeirra. Beðið er eftir svari frá þeim en það hefur tafist v/sumarleyfa.
c. Búvörusamningur: Undirritaður var samningur um skerðingu á búvörusamningi og fylgir hann gögnum stjórnarmanna. Að auki viljayfirlýisng aðila um að draga úr framleiðslukostnaði. Það jákvæða er að samningur framlengist um 2 ár svo ekki þarf að semja á mjög erfiðum árum. Einnig minnkar skerðing á framlögum frá því sem áður var og komið í veg fyrir aukinn niðurskurð. Hagræðingakrafa fellur brott. Tel að mikilvægt hafi verið að ganga frá þessu þar sem yfir vofir gríðarlegur niðurskuður á næstu 2-3 árum.
d. Reglugerð um upprunamerkingu vöru: Vert er að benda á að landbúnaðarráðherra undirritaði reglugerð um upprunamerkingu vöru þar sem skýrtkemur fram að merkja þarf allar vörur uppurnalandi. Með henni eru óskir SG og neytenda uppfylltar.

11. Önnur mál:
a. Gjaldtaka BÍ vegna vinnu ráðunautar: Lagður fram netpóstur frá Gunnar Guðmundssyni, sviðsstjóra ráðgjafarsviðs Bændasamtakann, um fyrirhugaða gjaldtöku BÍ vegna heimsókna erlendra ráðunauta. Reiknað er með að gjaldtakan verði afturvirk frá síðustu áramótum. AFGREIÐSLA: Stjórn SG telur að þjónusta MAÁ sé innan smaninga um búnaðarlög. Einnig er þar um að ræða endurmenntun ráðunar.
b. Ráðunautar í garðyrkju: Samkvæmt samtali við  Gunnar, frá BÍ, verður sett vinna í að finna nýjan raðunaut fyrir garðyrkjuna til þess að, þegar fram í sækir, að taka við starfi núverandi ráðunautar en allt bendir til þess að hann muni vilja minnka við sig vinnu eftir að hann verður sextugur á næsta ári.
c. Landbúnaðarháskóli Íslands: Formaður SG hefur var skipaður í háskólaráð LBHÍ.

Fundi slitið kl. 18:15
Bjarni Jónsson

 

Til baka
Prentvæn útgáfa


Samband garðyrkjubænda - Bændahöllinni við Hagatorg - 107 Reykjavík - Sími 563 0328, 896 8101 - gardyrkja@gardyrkja.is
Hafa samband | Veftré