
6. stjórnarfundur SG 2009, 23. september kl 13:00 í Bændahöllinni
Fundur hófst kl. 13:10. Mættir: Þórhallur, Friðrik, Vernharður, Bergvin og Sveinn auk framkvæmdastjóra sem ritar fundagerð.
1. Fundagerð síðasta fundar. Ákveðið var að samþykkja fundagerð ólesna en hún hafði í tvígang verið send stjórnarmönnum til yfirlestrar.
2. Aðlögunarsamningur.
Styrkumsóknir:
a. Sölufélag garðyrkjumanna: Umsókn um vöruþróun f/2009. Óskað hafði verið eftir kynningu á verkefnum eftir að BJ fékk slíka kynningu í ágúst mánuði. Frestað til næsta fundar.
3. Gjaldtaka BÍ vegna vinnu ráðunautar: Gunnar Gunnarsson, sviðsstjóri BÍ, mætti á fundinn til útskýringa. Gerði hann grein fyrir drögum að samstarfssamningi milli SG og BÍ. Einnig ræddi hann tillögu frá BÍ um að SG greiði úr aðlögunarsjóði fyrir 10-15 tíma vinnu ráðunautar við hverja heimsókn erlendra ráðunauta á taxta 3.500 kr. BÍ á von á allt að 100 m króna niðurskurði tekna á næsta ári og er leitað leiða til þess að auka tekjur BÍ. Einnig kom fram hugmynd um að ráðunautar innheimti gjald fyrir vinnu þegar um sértæk mál hvers og eins bónda er að ræða. Dæmi um slíka vinnu er t.d. aðstoð við fjárhagsáætlanir eða umsókn um styrki. Úttektir og önnur slík verkefni verða gjaldskyld. Ráðunautaheimsóknir verð ekki gjaldskyldar. Hugmyndin er ekki fullmótuð og verður rædd síðar. AFGREIÐSLA: Skoða og bera saman síðasta samstarfssamning áður en skrifað verður undir. Samþykkt að réttlætanlegt sé að greitt sé fyrir vinnu ráðunautar v/heimsókn erlendis frá en skoða þarf hve marga tíma. Hugmyndin um gjaldtöku fyrir sértæka heimsókn ráðunautar verður rædd nánar eftir að útfærsla hennar liggur fyrir.
4. Fjárhagur SG: Lögð fram bókun stjórnar BÍ v/bréf SG um búnaðargjaldamálið. Framkvæmdastjóri átti fund með Ernu Bjarnadóttur og Eiríki Blöndal um málið. Samkvæmt upplýsingum virðist pottur viða brotinn og mun BÍ óska eftir skoðun á þessu máli til Ríkisskatsstjóra. BÍ var sendur listi með athugasemdum og kom leiðrétting frá RSK en hún er einungis brot af því sem tekjur hafa minnkað. SG þarf að leggja fram greinagerð um þróun framleiðsluverðmætis til Ríkisskattsstjóra um stöðu hverrar greinar fyrir sig á árinu 2007. SG mun vinna þetta mál með Ernu. Einnig að ræða v/RSK um orsakir tekjuminkunnar. Það er síðan RSK að taka á því hvort breytingarnar séu eðlilegar.
Þær upplýsingar sem BÍ fær frá RSK um aðgreiningu gjalda eftir greinum eru í þremur flokkum: kartöflur, rófur og síðan annað grænmeti og blóm. BÍ getur því ekki veitt nánari greiningu. Ráðlagt að beina fyrirspurn beint til RSK. AFGREIÐSLA: Samþykkt að BJ vinni að málunum m/Ernu. Bréf verður útbúið og sent RSK. BJ semji bréf til félagsmanna og skýr málið og útlisti þjónustu og hagsmuni bænda með starfi SG.
5. Aðildarviðræður að Evrópusambandinu: Formaður ræddi um afstöðu SG til aðildar að Evrópusambandinu en SG hefur ekki opinberað neina slíka skoðun. Óskaði hann eftir afstöðu stjórnarmanna og eru 4 andsnúnir aðild og sá fimmti hefur enn ekki gert upp hug sinn. Aðild verður íþyngjandi við inngöngu verði ekkert að gert. Ljóst er að við aðild að ESB muni blómaræktun vegna mjög illa miðað við reynlsu m.a. Dana og Finna. Garðplöntugeirinn mun einnig eiga erfitt uppdráttar. Grænmetið er komið lengst í aðlögun nema ef vera skyldi útiræktun sem mun eiga undir högg að sækja. Rökstyðja þarf hvers vegna t.d. þarf að halda beingreiðslum í núverandi horfi og innleiða sambærilegt kerfi á aðrar greinar garðyrkjunnar. Þar vegur framleiðslu-kostnaður og smæð markaðar mestu. Hvers vegna er t.d. framleiðslukostnaður svo hár að hann réttlætir stuðning? AFGREIÐSLA: Óska eftir fundi með Magnúsi Ágústssyni, Ernu Bjarnadóttir, Daða Má Kristóferssyni, Þórhalli og BJ um áframhaldandi vinnu.
Lagt fram kostnaðarmat Daða Más v/rannsóknar á hagkvæmni og þjóðhagslegu mikilvægi garðyrkjunnar. Kostnaður er áætlaður um 1 milljón króna og að verkefninu ljúki fyrir áramót. Stjórnarmenn sammála um mikilvægi þessarar vinnu. AFGREIÐSLA: Samþykkt að ganga til samninga við Daða Má.
6. Uppskerubrestur á kartöflum vegna frosta: Eftir fund BJ m/Eiríki Blöndal var sent erindi til Bjargráðasjóð og óskað eftir ráðleggingu um framhaldið. Búið er að mæla garða og skýrsla MÁÁ liggur fyrir um skemmdir. Undirbúa þarf bréf til bænda sem fyrir tjóni urðu þar sem farið er yfir málið og hvað hægt er að gera.
7. Málefni garðyrkjustöðvarinnar NN: Greinagerð Ragnars H. Hall lögð fram. Magnús Ágústsson mætti á fundinn og gerði nánari grein fyrir málinu. Athugasemdir eru gerðar við þær kröfur sem í útboðslýsingu eru. Einnig að þær eigi ekki við og eru ekki að mæla það sem verið er að sækjast eftir og staðfestir erlendur sérfræðingur það. Dæmi eru um sambærileg óhöpp annara skógarplöntuframleiðenda án þess að slíkt hafi leitt til dómsmála. BÓKUN / AFGREIÐSLA : Stjórnin telur að um sé að ræða sameiginlegt hagsmunamál framleiðenda og styður því málshöfðun á þeim forsendum. Stjórnin samþykkir að veita allt að 1.500.000 króna að hámarki af kostnaði fyrir Héraðsdómi. Kostnaður í þessu sambandi er lögfræðikostnaður og kostnaður við dómskvadda matsmenn.
8. Rafmagnsmálin: Bréf, ásamt skýrslu Daða um rafmagnsmál, var sent ráðherrum landbúnaðar og iðnaðar með ósk um að óvissu um rafmagnsmál yrði eytt. Krafist er tímasetningar á lok málsins. Skýrslan verður einnig send nefndarmönnum sömu málaflokka á Alþingi.
Bréf var sent Orkumálastjóra, sem eftirlitsaðila með rafmagnsmálum, þar sem óskað er rannsóknar á meintum umframkostnaði vegna dreifbýlistaxta. Einnig er óskað eftir rannsókn á því hvort hækkanir á töxtum dreififyrirtækja frá 2005 sé réttlætanlegur.
Afleiðingar hækkunar á raforkuverði eru að notkun hefur minnkað og framleiðsla því dregist saman. Minnkun notkunar er 8,6% en minnkunn framleiðslu er í tómötum um 17%. Skortur er á gúrkum og framleiðsla það sem eftir lifir árs minni en áætluð var.
Fundur verður í rafmagnsnefnd SG 23/9. Ræða þaf hvernig standa eigi að raforkukaupum. Hugmynd er t.d. um að stofna félag um kaup á rafmagni eða innkaupasamlag.
9. Fánaröndin: Minnisblað frá fundi 21/8 með lögmönnum frá lögmannsstofunni LOGOS um væntanlega málshöfðun á hendur Matfugli v/misnotknar á fyrirtækjamerki SG – fánaröndinni. Stjórnarmenn sammála um mikilvægi þess að verja vörumerki garðyrkjunnar. AFGREIÐSLA: Samþykkt að höfða mál.
10. Upprunamerking vöru og merkingar umbúða:
a. Matvælastofnun: Bréf hefur verið sent Matvælastofnun, sem eftirlitsaðila, og krafist úrbóta vegna skorts á upprunamerkingu matjurta í smásöluverslun og villandi merkingum umbúða ofl. Tekið er á nokkrum málum: Í fyrsta lagi mál er varðar nýju reglugerðina um upprunamerkingu grænmetis. Í öðru lagi um villandi merkingar á umbúðum og í þriðja lagi er tekið á útstillingu á vöru í grænmetiskælum. Þar eru notaðir annarsvegar trékasar og hisnvegar sérmerktir kassar merktum SFG en í kassana er blandað allskonar vörum. Bent er m.a. á hættu á krosssmiti.
b. BÚR: Þrjár athugasemdir gerðar við umbúðir BÚR. Í einu tilfellinu er röng útfærlsa á fánarönd. Einnig er gerð athugasemd um villandi notkun merkinga á innlendri og innfluttri vöru en notaðar eru sömu merkingar. Þriðja athugasemdin er ósk um að nota ekki orðið heilsutómatar á innflutta lýkópen tómata til þess að neytendur ruglist ekki við val sitt.
Meðfylgjandi er svar BÚR. Í því er fallist á athugasemdir v/fánarandarinnar og verður það lagað strax. Ekki er hinsvegar tekið undir óskir um að breyta notkun á vörumerkinu ”Frískandi” sem notað er bæði á innlent og erlent grænmeti.
Heldur er ekki fallist á að hverfa frá notkun á orðinu ”heilsutómatar” á innfluttri vöru.
11. Umsókn um styrki:
a. Styrkumsókn vegna stofnunar Samtaka ungra bænda. Styrkbeiðni er 50.000 kr. AFGREIÐSLA: Umsókn hafnað.
b. Styrkumsókn vegna útgáfu bókar um Reykjavíkur veitingarhús. Höfundar. Ari Trausti Guðmundsson, Helga S. Aradóttir og Ragnar Th. Sigurðsson. Styrkbeiðni er 200.000 kr. AFGRIÐSLA: Umsókn hafnað.
12. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti: Ósk um tilnefningu í garðyrkjuhóp sbr. viljayfirlýsingu sem ráðherra og formaður SG undirrituðu í sumar. Tilnefndir hafa verið Sigurlaug Angantýsdóttir, Heiðmörk og Georg Ottóson, Flúðum.
13. Eftrifylgni mála:
a. Kynning þingmanna á garðyrkjunni: Búið að fresta kynningu en hún var áætluð síðustu vikuna í september. Of skammur tími var til þess að finna sameiginlega dagssetningu sem hentar. Gerð verður tilraun í október.
14. Önnur mál:
a. Umsögn um frumvörp á Alþingi: Óskað var eftir athugasemdum um matvælafrumvarpið og nú í fjórða sinn. Í nýju drögunum er tekið á merkingarmálum sem SG gerði athugasemd við í vor. Engin athugasemd frá SG við þessa afgreiðslu málsins. Athugasemd barst frá BÍ um að í nýju lögun er gróðurmold tekin út er kemur að banni við innflutning nema að uppfylltum skilyrðum. Samkv. Sigurgeiri Ólafssyni, MAST, er vörnin í lögum um plöntuvernd.
b. Tilfærsla fjármagns innan Aðlögunarsamnings: Netpóstur sendur landbúnaðarráðuneyti þann 1. september með ósk um að skoðað verði hvort heimilt sé að færa til fjármagn innan greina aðlögunarsamnings. Svarið er jákvætt en ganga verður frá því að aðilar eins og gulrófna-, blóma- og kartöflubændur samþykki slíka ráðstöfun. AFGERIÐSLA: BJ falið að kynna málið aðilum og fá fram afstöðu þeirra.
c. Þjófnaður í gróðurhúsum: Fundur verður á Hótel Selfossi, miðvikudaginn 30. september kl. 15:00. Að þessum fundi koma aðilar sem tengjast því á einn eða annan hátt.
d. Haustfundur SG - 13. nóvember: Málefni sem er fast í hendi er hefðbundið erindi MÁÁ um stöðu garðyrkjunnar. Kynning á rannsóknarniðurstöðu í papriku frá Christina Stadler LBHÍ. Einnig hefur verið falast eftir erindi Daða Más um ESB og garðyrkjuna. Reynt hefur verið að fá erlenda aðila til fyrirlestrar en hefur renst erfitt.
e. Bíll framkvæmdastjóra: BJ gerði grein fyrir óhappi er bíll hans, sem er á rekstrarleigu á kostnað SG, var ekið út í á af þriðja aðila. Bíllinn blotnaði mikið og er fyrirsjánalegur verulegur kostnaður vegna skemmda. BJ upplýsti að sá aðili sem ber ábyrgð á atvikinu hefur fullvissað sig um að greiða allan kostnað af óhappinu. Til vara fellur slíkur kostnaður á BJ. SG mun engan kostnað ber af atvikinu. BJ upplýsti formann SG um atvikið þegar í upphafi og það hvernig staðið yrði að kostnaði en formaðurinn óskaði eftir því að aðrir stjórnarmenn yrðu upplýstir um málið.
Fundi slitið kl. 16:45
Bjarni Jónsson