
7. stjórnarfundur SG 2009, 29. október kl 13:00 í Bændahöllinni
Fundur hófst kl. 13:00. Mættir: Þórhallur, Vernharður, Bergvin og Sveinn auk framkvæmdastjóra sem ritar fundagerð. Friðrik boðaði forföll með skömmum fyrirvara og ekki tókst að fá varamann í hans stað.
1. Fundagerð síðasta fundar. Formaður las fundagerð síðasta fundar og engar athugasemdir gerðar við hana og hún því samþykkt.
2. Aðlögunarsamningur.
Styrkumsóknir:
a. Sölufélag garðyrkjumanna: Umsókn um vöruþróun f/2009. Verkefnin voru kynnt stjórnarmönnum. Kostnaðaráætlun hefur verið endurskoðuð. Þórhallur vék af fundi við afgreiðslu málsins. AFGREISÐLA: Samþykkt að styrkja verkefnin.
b. Ósk um ferðastyrk: Magnús Skúlason frá Hveratúni óskar eftir ferðastyrk fyrir tvo starfsmenn fyrirtækisins v/ferða á HortiFair í Hollandi í október. Gögn samkvæmt skilyrðum liggja þegar fyrir. AFGREIÐSLA: Samþykkt
c. Ósk um ferðastyrk: Ómar Sævarsson frá Heiðmörk óskar eftir ferðastyrk fyrir tvo starfsmenn fyrirtækisins v/ferða á HortiFair í Hollandi í október. Gögn samkvæmt skilyrðum liggja þegar fyrir. AFGREIÐSLA: Samþykkt
d. Þátttaka í kjötsúpuveislu: Óskað eftir 30.000 kr. framlagi til að standa að kjötsúpudegi í búðum Krónunnar. Sauðfjárbændur, BÍ, sjónvarpsstöðin ÍNN og Krónan standa sameiginlega að verkefninu. AFGREIÐSLA: Beiðni var hafnað.
3. Fjárhagur SG: Lagt fram minnisblað um rekstrarniðurstöðu fyrstu 9 mánuði ársins. Tap er um 4 milljónir króna. SG hefur frá því í sumar þurft að endurgreiða BÍ 1,4 milljónir króna vegna 22% lækkunar á búnaðargjöldum félagsmanna. Á sama tíma hafa framlögin verið skert um tæpar 1,6 m. Lögð var fram bráðabirgða rekstraráætlun fyrir árið 2010 með tillögum um niðurskurð. Samkvæmt henni er gert ráð fyrir 1,7 m króna hagnaði. Þá var lagt fram yfirlit stöðu sjóða í eigu SG hjá Kaupþingi og er eignin 31,5 m. AFGREIÐSLA: Samþykkt að greiða stjórnarmönnum aðildarfélaga fyrir hámark 3 fundi. Samþykkt að vinna eftir rekstaráætlun framkvæmdastjóra fyrir 2010 og sparnaðartillögum.
4. Rafmagnsmálin: Ekki hefur verið svarað svarbréfi Orkustofnunar. Rætt var um að fá Jón Vilhjálmsson í Efla að sjá um útboðsmál vegna endurnýjun rafmagnssamninga. Ekki hefur fengist niðurstaða um uppsagnarákvæði rafmagnssamninga. Framkvæmdastjóri lagði fram tillögu til aðgerða til þess að vekja athygli á stöðu garðyrkjunnar og að ekki sé verið að vinna að lausn mála. Einnig lagt fram bréf Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga en þar er áskorun ársþings þeirra til iðnaðarráðherra að finna lausn á rafmagnsmálum garðyrkjunnar. Búið er að þakka fyrir stuðninginn. AFGREIÐSLA: Samþykkt að leita til Jóns um að sjá um útboðsmál á rafmagni fyrir garðyrkjubændur. Samþykkt að framkvæma tillögu framkvæmdastjóra til aðgerða fyrir framan Alþingi þann 3/11. Svara bréfi Orkustofnunar. Kannað verði hvernig uppsögn núverandi raforkusamninga er háttað.
5. Rannsókn á hagkvæmni og þjóðhagslegu mikilvægi garðyrkjunnar: Eftir fund með Daða Má Kristóferssyni og fleirum þar sem rætt var nánar um verkefnið var hann beðinn um að uppfæra upplýsingar um rannsóknina og nýja kostnaðaráætlun. Kostnaður fer úr 1 m í 1.6 milljón króna. Skýrslu verður skilað í lok febrúar 2010. AFGREIÐSLA: Samþykktar voru breytingar á forsendum og aukinn kostnaður. Leitað verði leiða til að kosta skýrslugerðina.
6. Haustfundur SG 13. nóvember: Haustfundur verður föstudaginn 13. nóvember á Hótel Sögu og stendur frá 13-17. Meðfylgjandi er dagskrá fundarins. Landbúnaðar-ráðherra mun ávarpa og setja fundinn. 4 fyrirtæki munu kynna og sýna þjónustu sína og greiða fyrir aðstöðuna. Lögð fram kostnaðar áætlun sem gerir ráð fyrir að fundurinn muni kosta að hámarki tæpar 60.000 kr. en í þeim tölum er ekki gert ráð fyrir þóknunum þeirra sem flytja erindin. Boðið verður uppá 3-rétta máltíð um kvöldið og gistingu á góðu verði. Landbúnaðarráðuneytið mun veita 80.000 kr. styrk vegna fundarins. Lagt til að ekki verður neinum boðið í málsverð eða gistingu eins og háttur hefur verið hafður á við slík tækifæri. AFGREIÐSLA: Samþykkt kostnaðaráætlun og dagsskrá fundarins.
7. Uppskerubrestur á kartöflum vegna frosta: Framkvæmdastjóri ásamt starfsmönnum Búnaðarsambands Suðurlands tóku út birgðir og sölu kartöflubænda í Þykkvabæ sem lent höfðu í frostskemmdum í sumar. Unnið verður úr þeim gögnum á næstu dögum og erindi síðan sent Bjargráðasjóði og hugsanlega þarf að leita til Landbúnaðarráðuneytisins ef útlit er fyrir að ekki fáist nægar bætur úr sjóðnum.
8. Fánaröndin: Gagnasöfnun þeirra fyrirtækja sem notað hafa fánaröndina til markaðssetningar er lokið og verður þeim skilað til LOGOS sem sér um málshöfðun SG gegn Matfugli sem hefur notað skrásett vörumerki SG án heimildar. Ekki er vitað hvenær málið verður dómtekið.
9. Stofnútsæði kartöflu: Landbúnaðarháskóli Íslands er hætt að vinna að málefnum stofnræktunar kartöflu. Sigurgeir Ólafsson mun leggja fram tillögu til úrlausnar á næsta fundi samstarfsnefndar um stofnútsæði sem verður á næstu vikum.
10. Samstarfssamningur SG og BÍ: Lögð fram drög að nýjum samningi og afrit af eldri samningi. Taka þarf afstöðu hvort skrifa eigi undir samninginn eða gera tillögu að breytingu. AFGREIÐSLA: Frestað fram að næsta fundi.
11. Hveragerðisbær: Lagt fram bréf frá Hveragerðisbæ og uppgjör á kostnaði við blómasýninguna í sumar. Þar er lýst yfir mikill ánægju með samstarfið í sumar og vel heppnaða sýningu. Í framhaldi er óskað eftir samstarfi við SG um að sýningin verði árlegur viðburður og jafnframt óskað eftir 500.000 króna framlagi fyrir árið 2010. AFGREIÐSLA: Afgreiðslu frestað til á næsta fundar.
12. Tilfærsla fjármagns innan Aðlögunarsamnings: Leitað hefur verið álits stjórna gulrófna-, blóma-, og kartöflubænda á fundi þann 29/10 um tilfærslu fjármagns á milli liða samningsins. Ekki var fallist á að veita fjármagni milli liða í samningnum og því verður ekki meira aðhafst í málinu. AFGREIÐSLA: Stjórn SG mælir ekki með því að fjármagni verði fært innan aðlögunarsamnings.
13. Hugmyndir um risa ylræktarver: Lagt fram minnisblað framkvæmdastjóra frá kynnningarfundi um ylræktarver. Hugmyndin er komin lengra en áður. Áhugasamir erlendir fjárfestar og innlendir aðilar eru þegar til staðar. Á næstu vikum/misserum verður unnið að hugmyndinni. Samþykkt að fylgjast með framvindu málsins.
14. Sameining garðyrkjunnar: Fram hafa komið hugmyndir um sameiningu gulrófnabænda við eitt af aðildarfélögum SG og þar með yrði garðyrkjan loks sameinuð. Óformlega hefur verið óskað eftir samræðum um málið. AFGREIÐSLA: Samþykkt að fela framkvæmdastjóra að eiga fund með FG og fara yfir stöðuna og möguleika á sameiningu garðyrkjunnar.
15. Eftrifylgni mála:
a. Kynning þingmanna á garðyrkjunni: Fresta henni fram yfir áramót vegna anna þingmanna.
16. Önnur mál:
a. Umsókn um styrk til Beint frá býli: Óskað eftir 500.000 króna styrk til rekstrar samtakanna árið 2010. AFGREIÐSLA: Málaleitan hafnað.
b. Framlag til Seljuverkefnis: Ósk frá garðplöntuframleiðendum að eftirstöðvar styrks uppá 438.244 kr. verði til ráðstöfunar á árinu 2010. AFGREIÐSLA: Samþykkt.
c. Erindi frá BÍ: Skráning á framleiðslu – mál nr. 17 frá Búnaðarþingi 2009. Óskað er afgreiðslu SG. AFGREIÐSLA: Samþykkt að fela framkvæmdastjóra að fara yfir málið með Ernu Bjarnadóttur.
d. Næsti stjórnarfundur: Lagt til að hann verði fimmtudaginn 3. desember kl. 13:00 hjá Grænum markaði. Jafnframt óskað eftir að fá kynningu á fyrirtækinu. Lagt til að sleppt verði árlegum jólamat stjórnar. AFGREIÐSLA: Samþykkt að leita eftir fundaaðstöðu og kynningu hjá Grænum markaði. Samþykkt að jólamat verði sleppt.
Fundi slitið kl. 15:50
Bjarni Jónsson