29. janúar 2010 | 11:33
| Úr fundargerðum

8. stjórnarfundur SG 2009

8. stjórnarfundur SG 2009, 9. desember kl 14:00 í Grænum markaði

Fundur hófst kl. 14:00. Mættir: Þórhallur, Friðrik, Vernharður, Bergvin og Sveinn auk framkvæmdastjóra sem ritar fundagerð.

Formaður setti fundinn og þakkaði forráðamönnum Græns markaðar að  hýsa stjórnarfund SG. Sigurður Moritzson kynnti fyrirtækið, sögu þess og stöðu auk þess var aðstaða fyrirtækisins skoðuð.

1. Fundagerð síðasta fundar. Formaður las fundagerð síðasta fundar og engar athugasemdir við hana og hún því samþykkt.

2. Aðlögunarsamningur.
Styrkumsóknir:
a. Samband garðyrkjubænda:
Styrkur vegna rannsóknar Daða Más Kristóferssonar um stöðu garðyrkjunnar og áhrif aðildar á garðyrkjuna. Heildarkostnaður er 1.6 milljónir kr. en sótt er um 800.000 kr. Einnig var sótt um fjármögnun til Framleiðnisjóðs. AFGREIÐSLA: Ekki samþykkti þar sem verkefnið fellur ekki innan ramma aðlögunarsjóðsins.
b. LBHÍ – styrkur til framhalds rannsókna á lýsingu á papriku: Rannsókn er farinn af stað sem hluti af samvinnu SG um rannsóknarstarf í Landbúnaðarháskólanum. Heildarkostnaður rannsóknarinnar er 14.4 milljónir króna og er óskað eftir 5 m króna framlagi úr aðlögunarsjóði SG. Sótt er einnig til Framleiðnisjóðs. Erindinu var vísað til Fagráðs og segir í umsögn þess: ”Tilraunin er samstarfsverkefni LBHI, Bioforsk í Særheim í Noregi og Martens trädgårdsstiftelse í Finnlandi. Tilraunin er framhald tilraunar sem gerð var 2008-2009. Fagráð mælir með því að umsókn verði styrkt”.  AFGREIÐSLA: Umsóknin uppfyllir öll skilyrði. Fagráð mælir með styrkveitingu og stjórn samþykkir hana.
c. Sólbyrgi – ósk um styrk til tilrauna með ræktun maís: Meginmarkmið verkefnisins er að kanna möguleikana á að rækta maís til þroska í gróðurhúsi.  Kostnaðaráætlun gerir ráð fyrir tæplega 1,8 m kr og sótt er um 821 þúsund kr. AFGREIÐSLA: Samkvæmt reglum um úthlutun er heimilt að veita styrk krónu á móti krónu. Í umsókn eru tekjur af sölu áætlaðar 800 þúsund auk eigins framlags 21.745 kr.  Heildarkostnaður er 1.643.490 kr. og eru því eftir 821.745 kr. Stjórn SG samþykkir að styrkja umsóknin um helming þessara upphæðar eða um 410.872 krónur. Í reglum um úthlutun stendur: Tilraunaaðili tilnefnir úttektaraðila sem SG samþykkir. Að verkefninu loknu votti úttektaraðili að verkefnið hafi farið fram samkvæmt áætlun. Eftir að skýrsla vottunaraðila berst SG verður styrkur greiddur.
d. Sölufélag garðyrkjumanna – umsókn v/3 vöruþróunarverkefni: SFG áformar að vinna að 3 vöruþróunarverkefnum sbr. umsókn. Heildarkostnaður verkefnanna er 15.250 þúsund kr. Erindinu var vísað til Fagráðs og segir í niðurstöðu þess: ” Fagráð mælir með verkefninu en bendir á að meta þarf raunhæfni kostnaðarliða.”  ÞB og FRF véku af fundi vegna vanhæfis. AFGREIÐSLA: Stjórn SG samþykkir styrkumsóknina og felur framkvæmdastjóra að taka út verkefnin reglulega, eða a. m. k. tvisvar á næstu mánuðum, eins og gert hefur verið. Kanna raunhæfni kostnaðar verkefnisins í samráði v/SFG.
e. Háskólafélag Suðurlands ehf.: Námsskeið og kynningarstarf fyrir lífrænt grænmeti. Samstarfsaðilar eru garðyrkjustöðvarnar Engi, Akur auk Hótel Geysis. Sem hluti af stærra verkefni er sótt um styrk til að samhæfa markaðssetningu og sölu lífrænna afurða og þróa lífræna rétti á matseðli hótelsins. Heildarkostnaður þessa hluta verkefnis er 1,4 milljónir króna en sótt er um 700 þúsund kr. úr markaðshluta aðlögunarsamnings. Erindinu var vísað til Fagráðs og segir í umsögn þess: Fagráð vísar til þess að verkefni vegna heilsársframleiðslu á gúrkum og papriku eru í gangi á Akri með stuðningi Aðlögunarsamnings. Á Engi er í gangi vöruþróunarverkefnið: „Vöruþróun nýrrar framleiðslu á austurlensku grænmeti“ með stuðningi Aðlögunarsamnings.. Þannig má benda á að framleiðsla vegna verkefnisins sé þegar styrkt. Jafnframt telur Fagráð að lýsingu á vöruþróunarferli vanti.   VG vék af fundi vegna vanhæfis. AFGREIÐSLA: Styrkbeiðni hafnað. Búið er að styrkja ýmsa þætti verkefnisins hjá framleiðendum og ekki talið að umsóknin falli innan marka aðlögunarsjóðsins.

3. Rafmagnsmálin: Jón Vilhjálmsson í Eflu er að vinna að útboði á raforku og er lokadagur skila tilboða 15. desember. Hann óskar eftir afstöðu stjórnar við bréfi sínum með drögum að rammasamningi.
Mikil vinna og fundahöld hafa farið í rafmagnsmálin á árinu. Fundir hafa verið með ráðherrum iðnaðar- og landbúnaðar auk nefnda sömu málaflokka á Alþingi. Sölufélag garðyrkjumanna hefur látið Eymund Sigurðsson, rafmagnsverkfræðing á Verkfræðistofu Jóhanns Indriðasonar, gera tillögu um að reisa dreifiveitu rafmagns til garðyrkjubænda í uppsveitum Árnessýslu. Útreikningar hans benda til þess að hagkvæmnin sé veruleg m. v. núverandi kostnað við dreifingu. Kostnaður á dreifingu er aðeins þriðjungur af núverandi kostnaði með RARIK.
Fundur var 7/12 með fulltrúum Orkustofnunar sem er eftirlitsaðili á raforkumarkaði. Kynntar voru niðurstöðurnar. Fundurinn var mjög jákvæður og var ákveðið að SG sendi formlegt erindi til OS vegna málsins þar sem m.a. verður spurt um heimild fyrir slíkri framkvæmd. Einnig að SG sendi nefnd, sem vinnur að endurskoðun raforkulaga, álit sitt.
Fyrirhugaður er síðan fundur 11/12 með embættismönnum úr iðnaðar- og landbúnaðarráðuneyti. Vonast er til að lausn finnist á rafmagnsmálum garðyrkjunnar á næstu vikum. AFGREIÐSLA: Óska eftir því við Jón V að óska eftir tilboði á verði rafmagns miðað við 3, 5 og 7 ár.

4. Samstarfssamningur SG og BÍ: Erindi frá síðasta stjórnarfundi. Lögð fram drög að nýjum samningi. Minnisblað með samanburði lagt fram. AFGREIÐSLA: Samþykkt að heimila formanni að undirrita samning fyrir hönd stjórnar.

5. Seljuverkefni: Á síðasta stjórnarfundi var samþykkt að eftirstöðvar framlags SG til verkefnisins verði áfram til ráðstöfunar. Við nánari skoðun á stöðu Selju þá eru eftirstöðvar styrksins hærri en talið var. Bókari SG hefur farið yfir allar færslur og auk þess að eftirstöðvar hafa hækkað þá er SG í skuld við garðplöntufélagið að upphæð 150 þúsund kr. v/greiðslu sem inna hefði átt af hendi árið 2007. Stjórn SG ítrekar að gæta þarf þess að haldið sé vel utan um  verkefni á vegum þess til að engin mistök eigi sér stað.

6. Hveragerðisbær: Erindi frá síðasta stjórnarfundi. Ósk um samstarf um árlega blómasýningu. Jafnframt óskað eftir 500.000 kr. framlagi SG fyrir árið 2010. AFGREIÐSLA: Samþykkt var að eiga slíkt samstarf og jafnframt að veita kr. 500.000 krónum í verkefnið. Tekið skal sérstaklega fram að stjórn SG treystir sér ekki til að skuldbinda sambandið til lengri tíma en til eins árs að svo stöddu.

7. ESB mál: Skýrslu Hagfræðistofnunar HÍ frá 2007 „Kostir og gallar upptöku evru sem gjaldmiðils á Íslandi“ dreift til stjórnarmanna.
Rannsókn um stöðu garðyrkjunnar og áhrif aðilda að ESB verður tilbúin fyrir lok janúar. Æskilegt væri að kynna hana með málstofu en ákvörðun verður tekin um það síðar.

8. Ráðunautaþjónusta 2010: Tillögur og hugmyndir Magnúsar Ágústssonar lagðar fram.

9. Aðgangur söluaðila að félagaskrá SG: Formleg ósk hefur borist frá fyrirtækinu Enso, sem selur m.a. lausnir með LED lýsingu, að fá aðgang að „félagalista yfir bændur sem hafa yfir gróðurhúsum að ráða“. AFGREIÐSLA: Stjórn SG ítrekar fyrri afstöðu sína að heimila ekki söluaðilum þjónustu aðgang að félagalistum.

10. Umsögn um frumvarp til Alþingis: Umsögn um „Frumvarp til laga um umhverfis- og auðlindaskatta sent 8/12 til Alþingis. Framkvæmdastjóri er kallaður til fundar við efnahags- og skattanefndar 10/12.

11. Eftrifylgni mála:
a. Kynning þingmanna á garðyrkjunni:
Er til skoðunar í janúar.
b. Gjaldstofn Búnaðargjalds: Svar Ríkisskattsstjóra dags. 2/11 vegna óska um rannsókn á misræmi á búnaðargjaldstofni áranna 2006 og 07. Áætlun hjá RSK var röng sem nam 400 milljónum króna sem leiddi til 22% skerðingar á tekjum SG vegna tekjuársins 2007.
c. Uppskerubrestur í Þykkvabæ: Skilað var inn erindi til Bjargráðasjóðs með gögnum. Afgreiðslu beðið. Áætlað er að framleiðslan sé aðeins 49% af framleiðslu ársins 2008 og nemur tekjutapið 187.8 milljónum króna.
d. Stofnútsæði kartöflu: LBHÍ er hætt að vinna að málefnum stofnræktunar kartöflu. Sigurgeir Ólafsson mun leggja fram tillögu til úrlausnar á næsta fundi samstarfsnefndar um stofnútsæði sem verður á næstu vikum. Fundur hefur ekki verið haldinn. Bréf fer til stofnútsæðisræktenda í vikunni.
e. Fánaröndin: Verið er að leggja lokahönd á stefnu á hendur Matfugli vegna villandi notkunar á fánaröndinni. Sú vinna hefur tafist nokkuð frá áætlun sem gerð var í upphafi. Árétta við lögmenn að það var SG sem var upphafsaðili fánarandarinnar og kostaði hana.
f. Viðræður við Félag gulrófnabænda um sameiningu SG og FG: Lagt fram minnisblað frá fundi framkvæmdastjóra með stjórn FG. Á aðalfundir FG fékk stjórnin umboð til þess að ræða formlega við SG um sameiningu. Áætlað er að þær samræður fari fram í upphafi næsta árs. Samþykkt að formaður og framkvæmdastjóri leiði þessar umræður. Einnig verði skoðað að kalla til alla stjórn SG til viðræðna ef með þarf.

12. Önnur mál:
a. Erindi frá BÍ: Skráning á framleiðslu – mál nr. 17 frá Búnaðarþingi 2009. Óskað er afgreiðslu SG. AFGREIÐSLA: Eftir samtal við Ernu Bjarnadóttur er ekki talin ástæða að taka erindið fyrir.
b. Haustfundur: Tókst vel og er áætlað að á fundinn hafi mætt um 100 manns. Yfirlit yfir kostnað lagt fram og er heildarkostnaður 54.250 kr.
c. Stjórnarfundir 2010: Fram kom að besti tími fyrir stjórnarfundi er miðviku- eða fimmtudagar. Framkvæmdastjóra falið að gera tillögu að næsta fundi og taka tillit til álags í blómageiranum í upphafi árs.
d. Aðalfundur 2010: Tillaga að hann verði föstudaginn 16. apríl að því gefnu að ársreikningar verði tilbúnir.
e. Formaðurinn hættir: Þórhallur Bjarnason tilkynnti að hann hygðist víkja sem formaður á næsta aðalfundi SG. Hann hefði ætlað sér að hætta fyrir 2 árum en hætti við en hefur ákveðið nú að láta verða af því.

Fundi slitið kl. 18:00
Bjarni Jónsson

Til baka
Prentvæn útgáfa


Samband garðyrkjubænda - Bændahöllinni við Hagatorg - 107 Reykjavík - Sími 563 0328, 896 8101 - gardyrkja@gardyrkja.is
Hafa samband | Veftré